Uppgreiðslurnar námu milljarði 10. febrúar 2005 00:01
Uppgreiðslur lána hjá Byggðastofnun námu tæpum 1.100 milljónum króna frá 1. september 2004 fram til dagsins í dag. Það er um 8-9 prósent af heildarútlánum. Uppgreiðslurnar hafa dregist umtalsvert saman upp á síðkastið en Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, vill ekki nefna neina tölu. Segir starfsfólkið bara merkja það í sínum daglegu störfum. Uppgreiðslurnar voru sérstaklega miklar í september og október á síðasta ári en það tímabil var "mjög bratt" þegar bankarnir fóru inn á fasteignalánamarkaðinn og lækkuðu vexti. "Okkur fannst svolítið skrítið að það skyldi koma heilmikil skriða því að við erum ekki í íbúðalánunum en það segir okkur bara að það er eitthvað að smitast þarna á milli. Menn voru að nýta þá fjármuni í ýmsa hluti, það er alveg ljóst," segir Aðalsteinn. Fjármál Byggðastofnunar hafa talsvert verið til umræðu en Herdís Á. Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar, lagði fram þingsályktunartillögu um að ríkisstjórninni verði falið að veita stofnuninni einn milljarð króna. Aðalsteinn segir að ekki megi verða mikið framhald á uppgreiðslunum. "Ég vil meina að það hafi dregið verulega úr þessari þróun og ákveðið jafnvægi sé komið á. Ég myndi ekki vilja sjá uppgreiðslurnar verða mikið fleiri." Byggðastofnun hefur takmarkað svigrúm til að bregðast við þróuninni en lækkaði þó vexti 1. desember. Aðalsteinn segir að við það hafi heldur dregið úr þróuninni. Þá segir hann að verði breytingar á gengi krónunnar til lækkunar síðar á árinu eins og sumar greiningardeildir bankanna gera ráð fyrir þá geti það haft breytingar í för með sér. Vextir á langtímalánum og framkvæmdalánum eigi tæplega eftir að hækka aftur. "Þessi staða leiðir til þess að við hér í Byggðastofnun þurfum að setjast niður og meta stöðuna," segir hann. "Menn þurfa að velta fyrir sér hver er tilgangurinn með starfseminni og í hvaða búningi hún þarf að vera til að geta starfað."
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira