Kosið fyrir umdeildar breytingar 18. janúar 2005 00:01
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana tilkynnti á þingfundi í gær að þingkosningar verða haldnar 8. febrúar, eftir 20 daga. Kjörtímabilinu lýkur ekki fyrr en í nóvember, en Anders Fogh sagði á þinginu í gær að nauðsynlegt væri að flýta þingkosningum, svo þær rekist ekki á sveitarstjórnarkosningarnar sem verða haldnar 15. nóvember. Stjórnmálaskýrendur í Danmörku, meðal annars í ítarlegri úttekt í Berlinske Tidende, benda á að stjórnarflokkarnir njóti nú vinsælda í skoðanakönnum og treysti á að þær muni haldast áður en til umbóta kemur í vor, sem mun fækka sveitarfélögum úr 274 í 100. Með þessum breytingum mun opinberum störfum einnig fækka. Mikið hefur verið um það rætt í Danmörku að undanförnu að kosninga sé að vænta og kynntu jafnaðarmenn áhersluatriði sín á sunnudag undir kjörorðinu Made in Denmark. Meðal kosningaloforða er að skapa 50.000 ný störf á kjörtímabilinu auk 110 milljarða króna skattalækkana. Í viðtali við Danska útvarpið lýstu bæði Mogens Lykketoft, formaður Jafnaðarflokksins og Pia Kjærsgaard, formaður danska Þjóðarflokksins yfir ánægju með að kosningar verði haldnar nú. Rasmussen, sem er formaður Frjálslynda flokksins, stýrir nú minnihlutastjórn með Íhaldsflokknum, með stuðning Danska þjóðarflokksins og hafa þeir alls 94 þingmenn af 175. samkvæmt Gallup könnun sem birtist á sunnudag myndi núverandi stjórn halda velli. Einnig hafa Kristilegir Demókratar lofað núverandi stjórn stuðningi sínum. Þeir hafa nú fjóra þingmenn, en fengu engan samkæmt Gallup könnuninni. Bendt Bendtsen, formaður Íhaldsflokksins og varaforsætisráðherra segir stjórnarflokkanna tvo ganga hönd í hönd til þessara kosninga. Þetta undirstrikuðu leiðtogar flokkana með því að halda stuttan sameiginlegan blaðamannafundi í gær. Anders Fogh Rasmussen lagði þó áherslu á að þetta væru tveir ólíkir flokkar. Kosingaloforð flokkanna er að efla rannsóknir og menntun, meðal annars með því að leggja aukið fé í rannsóknir og fjölga samræmdum prófum í grunnskólum. Þá á að skapa 60.000 ný störf á kjörtímabilinu, efla sjúkrahús og bæta stöðu barnafjölskyldna. Anders Fogh segir að ekki verði vikið frá núverandi skattastefnu. Skipting þingmanna í danska þinginu Kosningar /Gallup könnun 16/1 Jafnaðarmenn 52 /55 Radikal Venstre 9 /12 Íhaldsflokkurinn 16 /14 Miðdemókratar 0 /0 Sósíalíski þjóðarflokkurinn 12 /12 Kristilegir demókratar 4 /0 Minnihlutaflokkurinn 0 /0 Danski þjóðarflokkurinn 22 /21 Frjálslyndi flokkurinn 56 /57 Einingarflokkurinn 4 /4 aðrir 0 /0 alls 175 /175
Erlent Fréttir Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira