80 milljónir munu deyja fyrir 2025 4. mars 2005 00:01
Níutíu milljónir Afríkubúa munu verða smitaðir af HIV-veirunni árið 2025 fari þjóðir heimsins ekki að taka við sér í baráttunni. Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna dregur upp dökka mynd af stöðu og horfum. Alnæmisvarnastofnun Sameinuðu þjóðanna UNAIDS sendi á föstudaginn frá sér skýrslu þar sem reynt er að meta hvaða framtíð bíður HIV-smitaðra Afríkubúa og hvernig þjóðir heimsins muni bregðast við þeim skelfilega vanda sem álfan glímir nú við. Til greina koma þrjár mögulegar spár en þær gera allar ráð fyrir að alnæmisfaraldurinn eigi eftir að ná hámarki sínu og að í það minnsta 67 milljónir Afríkubúa muni deyja fyrir árið 2025. Versta dæmið gerir ráð fyrir að fjárframlög og aðstoð til HIV-smitaðra muni standa í stað. Verði sú spá að veruleika er útlit fyrir að tala þeirra Afríkubúa sem deyja úr alnæmi muni fjórfaldast og verði árið 2025 áttatíu milljónir. Níutíu milljónir manna ganga þá með HIV-veiruna, samanborið við 25 milljónir í dag. Besta spáin gerir ráð fyrir að framlög til málaflokksins muni tvöfaldast og að löndum Afríku muni takast að gera gagngerar endurbætur á heilbrigðiskerfum sínum. Ef þessar forsendur standast verður hægt að bjarga sextán milljón mannslífum og 43 milljónum manna frá því að smitast. UNAIDS telur að 12.000 miljarða króna þurfi til þess að besta spáin geti ræst en þau fjárframlög sem þegar hefur verið lofað hrökkva alls ekki til. "Ef alnæmisfaraldurinn verður jafn skæður árið 2025 eins og í dag er það ekki vegna þess að það er óumflýjanlegt heldur vegna þess að pólitískan vilja skorti í heiminum til að gera eitthvað í málunum," segir í aðfararorðum skýrslunnar. UNAIDS bendir á að í níu Afríkulöndum séu lífslíkur íbúanna undir fjörutíu árum vegna veikinnar. 6.500 manns deyja á degi hverjum og ellefu milljónir barna eru munaðarlaus. Á síðasta ári smituðust rúmar þrjár milljónir manna af HIV-veirunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Innlent Bátar brenna í Bolungarvík Innlent Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Veður Tekist á um Evrópumálin Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Sjá meira