Telur sparnaðarleið óeðlilega 4. mars 2005 00:01
Landhelgisgæslan kemur sér hjá því að borga virðisaukaskatt og flutningsjöfnunargjald af olíu á varðskipin með því að kaupa hana í Færeyjum. Varaformaður fjárlaganefnar telur óeðlilegt að ríkisstofnun reyni að spara með þessum hætti. Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, segir ekki eðlilegt að Landhelgisgæslan sem ríkisstofnun reyni að komast hjá sköttum og skyldum með slíkum hætti þótt útgerðir hér á landi stundi það að kaupa olíu í Færeyjum. Það geti talist óeðlilegt ef ríkisstofnun reyni að forðast opinberar álögur með slíku. Hann geti hins vegar ekki séð að Landhelgisgæslan brjóti lög með þessu og telji þetta ekki stórmál en ef Landhelgisgæslan telji sjálf að verðið á Íslandi sé óeðlilegt miðað við verð á frjálsum markaði í Færeyjum þá sé það ekkert nema eðlileg sjálfsbjargarviðleitni að kaupa þar olíu ef skipin eiga þar leið um. Einar var inntur eftir því hvort ekki væri hæpið að skipin hefðu í öllum tilvikum átt leið hjá Færeyjum þar sem öll olía hefði verið keypt þar í fyrra og svaraði hann því játandi. Aðspurður hvort ekki væri ástæða til þess að skoða hvernig málum væri háttað og jafnvel breyta starfsháttum sagði Einar að slík mál væru alltaf í skoðun en Landhelgisgæslan hefði löngum talið að henni væri þröngt sniðinn stakkur og það kunni að vera rétt. Hann telji að það sé skilningur og vilji til þess að stofnunin verði rekin með reisn eins og löngum hafi verið. Hann eigi von á að það sé skilningur hjá ríkisvaldinu um það þannig ekki þurfi að leita að fjármagni með neinum kúnstum til þess að halda henni gangandi. Landhelgisgæslan kaupir eldsneyti fyrir um 70 milljónir króna á ári fyrir varðskipin þrjú og flugvélar í hennar eigu. Varðskipin sinna iðulega gæslu á hafsvæðinu á milli Íslands og Færeyja og þar kýs gæslan að kaupa olíu. Í fréttum Stöðvar 2 á sunnudag kom fram að olía er flutt milli skipa Landhelgisgæslunnar og í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Georg Lárussyni, forstjóra Landhelgisgæslunnar, að olía hafi stundum verið flutt á milli skipa ef ekki hafi verið til fyrir olíu hjá stofnuninni. Einar segir að tollstjóri telji að það eigi að skattleggja, alla vega með jöfnunarsjóðsgjaldi
Fréttir Innlent Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Fara fram á gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Fleiri fréttir Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Fara fram á gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Sjá meira