Stjörnuleitin slær í gegn 4. mars 2005 00:01
Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup. Að meðaltali lesa 67,1 prósent blaðið daglega sem er örlítið minni lestur en í könnun Gallups frá nóvember á síðasta ári. Samkvæmt könnuninni lesa 51,9 prósent Morgunblaðið daglega en í síðustu könnun var það hlutfall 49,4 prósent. Hástökkvari dagblaða er DV, en nú lesa 20,1 prósent landsmanna blaðið daglega en samkvæmt síðustu könnun voru það 16,7 prósent. Vinsælasti frumsýndi sjónvarpsþátturinn í febrúar var Idol-stjörnuleit, sem sýnd er á Stöð 2. Rétt tæplega helmingur þjóðarinnar fylgdist með. Í nóvember þegar síðasta könnun var gerð, voru það 43,3 prósent landsmanna sem horfðu á Idol en nú eru það 49,5 prósent. "Að vinsælasta sjónvarpsefnið sé sent út í læstri dagskrá, það hlýtur að vera óvanalegt," segir Heimir Jónasson, dagskrárgerðarmaður á Stöð 2. Hann segir jafnframt að með þessari könnun sé brotið blað í íslenskri sjónvarpssögu. Aldrei fyrr hafi heildaráhorf á Stöð 2 verið svona mikið, sem komi til vegna samspils frábærrar dagskrár og góðrar markaðssetningar. Það er fyrrum langvinsælasti sjónvarpsþátturinn, Spaugstofan, sem nú er í öðru sæti. Nú eru það 48,6 prósent sem horfa á Spaugstofuna, en í síðustu könnun 59,1 prósent. Þá minnkar áhorf á þættinum Laugardagskvöld með Gísla Marteini. Nú horfa 39,3 prósent á þáttinn, en voru 53,9 prósent. Fréttir Ríkissjónvarpsins hafa sama áhorf og í nóvember, 43,3 prósent. En áhorf á fréttir Stöðvar 2 hefur dalað lítillega, úr 34,4 í 33,5 prósent nú. Vinsælasti þátturinn á Skjá einum var Innlit-útlit, og mældist hann með 20,6 prósenta áhorf. Í könnuninni var fólk spurt hvort það hefði haft frían aðgang að fjölmiðlum í vikunni sem könnunin var gerð. Alls sögðust 6,9 prósent hafa fengið Morgunblaðið frítt. Þá sögðust 10,3 prósent hafa fengið DV frítt. 3,8 prósent sögðust hafa fengið Stöð 2 frítt og 1,6 höfðu fengið Sýn frítt. Könnun Gallups var dagbókarkönnun sem gerð var dagana 4. til 10. febrúar. Í úrtaki voru 1.266 Íslendingar á aldrinum 12 til 80 ára, valdir með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá. Nettósvarhlutfall var 63,3 prósent.
Fréttir Innlent Mest lesið Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Líkamsárás í farþegaskipi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Fleiri fréttir Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Vilja innlima Vesturbakkann og deilu um göngustíg lýkur með vöfflum Handtekinn vegna ólöglegs vopnaburðar Bilun í flugstjórn olli um tveggja tíma seinkun Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð Ekki þeir sömu og voru handteknir vegna fyrri þjófnaðarins Minni helst á þjóðarmorð Serba á múslimum í Bosníu Hneig niður vegna flogakasts Sjá meira