Ráðherra líti sér nær 11. febrúar 2005 00:01
Áfengisheildsalar vísa á bug ásökunum fjármálaráðherra um að þeir lækki ekki verð á víni sem keypt er fyrir Bandaríkjadollara, í samræmi við lækkandi gengi dollarans. Geir H. Haarde fjármálaráðherra lýsti þessum skoðunum sínum á Morgunvakt Rásar tvö í gærmorgun og sagði að sig grunaði að heildsalar lækkuðu ekki vörur sem væru greiddar í dollurum. Aðspurður hvort hann gæti nefnt sérstaka vörutegund í þessum efnum nefndi Geir áfengi. Hann þekkti vel til þar og vissi að mikið af víni væri keypt í dollurum og hann væri ekki viss um að lágt gengi hefði skilað sér í kaupverð. "Heildsalarnir sem þar eiga hlut að verða að standa sig betur." "Ölgerðin flytur engar vörur inn fyrir Bandaríkjamynt, þetta er allt í evrum," segir Bjarni Brandsson, deildarstjóri í áfengisdeild Ölgerðarinnar. Bjarni segir að fyrir nokkrum árum, þegar dollarinn var sem hæstur, hafi flestir farið að greiða fyrir vörur í evrum og segir að þær vörur sem greiddar séu í dollurum séu aðeins örlítill hluti af vörulager ÁTVR. Ásgeir Johansen, framkvæmdastjóri Rolf Johansen & Company, segir að þar séu mjög fáar vörur greiddar í dollurum og einnig að innkaupsverð birgja sé sáralítill hluti af verði til ÁTVR. "Áfengisgjaldið er svo stór hluti að jafnvel þótt innkaupsverðið lækki endurspeglast það að litlu leyti í verðinu." Undir þetta tekur upplýsingafulltrúi Karls K. Karlssonar ehf. sem og Guðrún Björk Geirsdóttir, deildarstjóri í víndeild Austurbakka. "Innkaupsverð af einni léttvínsflösku er kannski dollari. Við það bætist alkóhólgjald sem er 450 krónur, í ÁTVR bætist við 13 prósenta álagning og svo virðisaukaskattur ofan á það. Neytandinn sér lítið af þeim verðbreytingum sem verða hjá okkur en við reynum að sjálfsögðu að láta þær skila sér," segir Guðrún. Guðrún bætir við að sér þyki gagnrýnin koma úr hörðustu átt, þar sem fjármálaráðherra hafi hækkað skatt á sterku víni í tvígang síðan 2002, sem birgjar hafi borið kostnað af. "Hvernig í ósköpunum eiga neytendur að verða varir við einhverja lækkun?"
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira