Ráðherra varar fólk við 11. febrúar 2005 00:01
Helmingur af verðbólgu síðustu tólf mánaða er vegna hækkana á fasteignaverði. Fjármálaráðherra segir þessar hækkanir komnar til vegna breyttra aðstæðna á lánamarkaði og biður fólk að fara varlega í skuldsetningu þar sem óljóst er hvert stefnir. Verðbólgan er komin yfir fjögur og hálft prósent, eða efri þolmörk Seðlabankans. Menn hafa að vonum áhyggjur af þessu en fari hún ekki að hjaðna eru kjarasamningar í uppnámi, svo ekki sé talað um annað. Sprengjan á fasteignamarkaði á þarna mikla sök. Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir nauðsynlegt að brýna fyrir fólki að fara varlega í fasteignaviðskiptum; vera ekki að steypa sér í mjög miklar skuldir því ekki sé víst hver þróunin verður í framtíðinni. Fólk gæti endað með að tapa miklu fé. Það er hins vegar ekki bara hægt að kenna háu fasteignaverði um verðbólguna. Margir telja að verð á innfluttum vörum ætti að vera mun lægra hér á landi um þessar mundir þegar krónan stendur sterk gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Fjármálaráðherra segist hafa grun um að neytendur séu ekki að njóta sterkrar krónu sem skyldi og nefnir sem dæmi könnun á vöruverði hjá ÁTVR - ríkisreknu áfengis og tóbaksversluninni - og hvetur hann alla heildsala sem eiga í viðskiptum við ríkið til að standa sig betur. Geir vill ekkert segja til um hvort verið geti að kaupmenn beri ekki það traust til krónunnar að hún muni haldast áfram sterk. Þó geti alveg verið að menn eygi þarna möguleika á að ná sér í tiltölulega auðtekinn hagnað. Hann hvetur neytendur til að standa vaktina því um hagsmuni almennings sé að ræða.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Innlent Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Innlent Elín Hall er fjallkonan í ár Innlent Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Erlent Skopmyndateiknari skotinn til bana Erlent Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Innlent Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Innlent Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Erlent Kennarar óttast framkvæmd símafrís Innlent Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Innlent Fleiri fréttir Sex þúsund símar nái mögulega ekki sambandi við Neyðarlínu Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Elín Hall er fjallkonan í ár Rændu sjónvarpi og flúðu á brott Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Ráðleggur Miðflokksmönnum að breyta um tón Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Kennarar óttast framkvæmd símafrís Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Ekki óvenjulegt að konan gangi laus þrátt fyrir hrottalegar lýsingar Á ekki von á fleiri aflýsingum vegna mönnunar Bogi Nils í beinni, óvenjulegt sakamál, og Tiktok-ömmur Á sjúkrahús eftir að hafa kastast úr golfbíl Snúa bökum saman í sameiginlegri yfirlýsingu Þrír fluttir eftir alvarlegt umferðarslys í Reykholti Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun „Hún glímir ekki við geðræna erfiðleika“ Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Símarnir í frí í skólum Reykjavíkur frá haustinu Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Alþingi á lokasprettinum: Þingstörfin gjörólík milli ára Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Sjá meira