Borgarstjórinn í Prag í dulargervi 14. janúar 2005 00:01
Borgarstjórinn í Prag klæddist dulargervi á dögunum til þess að minnka útgjöld íslenskra ferðamanna sem heimsækja höfuðborg Tékklands í sumar. Fjölmargir Íslendingar heimsækja Prag, hina fögru höfuðborg Tékklands, á hverju ári. Og margir þeirra hafa sagt frá ótrúlegu okri leigubílstjóra í borginni. Auðvitað hafa aðrir erlendir ferðamenn orðið fyrir þessu líka en þeir skipta nú minna máli. Svo rammt hefur kveðið að þessu að borgarstjórinn í Prag, Pavel Bem, ákvað að kanna málið sjálfur. Hann klæddi sig í dulbúning og þóttist vera útlendingur. Hann fór svo niður á gamla torgið í miðborginni og tók þaðan leigubíl að Prag-kastalanum en þetta er leið sem ferðamenn fara mjög gjarnan. Og Bem borgarstjóra brá heldur betur í brún þegar hann var krafinn um þrjátíu og fjóra dollara fyrir þessa þriggja kílómetra leið. Það er 500 prósentum yfir skráðum taxta. Leigubílarnir í Prag eru með gjaldmæli en margir bílstjóranna hafa tengt við þá búnað sem margfaldar hraða þeirra ef þeir ýta á takka. Um fjórar milljónir ferðamanna heimsækja Prag árlega þannig að líklega eru leigubílstjórarnir með tekjuhærri mönnum í landinu. Bem borgarstjóri hét því að skera upp herör gegn þessu okri og ráðleggur ferðamönnum að semja fyrirfram um verðið ef þeir taka leigubíl.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira