Matur

Lystugt nesti er lykilatriði: Samlokur og tortillurúllur

Hjá mörgum er páskahelgin fyrsta sumarbústaðaferðin á árinu, aðrir bregða sér í dagsferð eða bara rómantíska lautarferð. Hlýindin eru skíðafólki eflaust til ama en vonandi finnast einhverjir skaflar sem hægt er að renna sér á. Lystugt nesti og gott er nauðsynlegt þegar haldið er af bæ og það borgar sig margfalt að leggja smá alúð í fráganginn. Langt getur líka verið í næstu búð þegar komið er á staðinn því er fyrirhyggja nauðsynleg. Þar sem spáin er góð er líklegt að þeir sem ætla í bústað noti tækifærið og dusti rykið af útigrillinu, sé það fyrir hendi. Hvað menn taka með sér fer auðvitað meðal annars aðstæðum á áfangastað.

Ef maturinn á að vera heitur og eldunargræjur eru á staðnum eru grillmatur og pottréttir þægilegir. Brauðmeti, mjólkurmatur, grænmeti og ávextir eru sjálfsagðir í nestiskörfuna. Þegar matast er úti í náttúrunni er fátt lystugra en samlokur og kakó. Því koma hér tillögur að nokkrum gerðum af samlokum og þar njótum við leiðsagnar fagmanna.

Samloka Marentzu Paulsen

4 sneiðar vönduð skinka

Dijon sinnep

klettasalat

nokkrar sneiðar camembertostur

Dijon sinnepið smurt á brauðið, salatblöðin lögð á, skinkan og osturinn á milli.

Langloka frá Konditori Copenhagen

1/3 gróft baguette-brauð

maukaðir sólþurrkaðir tómatar í olíu

6 þunnar sneiðar af grilluðu eggaldini, penslaðar með ólífuolíu og kryddaðar með salti og pipar

alfa alfa baunaspírur (gefa ferskt bragð og safa)

rifin agúrka

rifin gulrót

nokkrar sneiðar púrrulaukur

Ísak Runólfsson í Veislunni á Seltjarnarnesi gaf uppskrift að eftirfarandi:

Tortillarúllur

Tortillapönnukökur stórar

skinka

ostur

íssalat

rauð paprika

tómatar

mexíkósk ostasósa

Sósunni smurt á tortillakökuna, kál, paprika, tómatar, skinka og ostur sett á. Rúllað upp, þéttingsfast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×