Grunsemdir um eldflaugarskot 1. maí 2005 00:01
Suður-kóresk stjórnvöld gruna Norður-Kóreumenn um að hafa skotið á loft skammdrægri eldflaug í gærmorgun, en suður-kóreska leyniþjónustan var síðla dags enn að vinna í því að afla staðfestingar á fréttinni. Fregnir hermdu að flaugin hefði lent í Japanshafi. Fjölmiðlar í Japan og Suður-Kóreu sögðu frá því að talsmenn Bandaríkjahers hefðu upplýst japönsk yfirvöld um hið meinta eldflaugarskot. Samkvæmt heimildum þessara miðla fór flaugin um 100 km leið út frá austurströnd N-Kóreu og stakkst síðan í sjóinn. Hvorki fulltrúar Japansstjórnar né bandarískir erindrekar voru reiðubúnir að tjá sig nokkuð um þessar fréttir. Að sögn AP-fréttastofunnar staðfesti hins vegar starfsmaður suður-kóresku leyniþjónustunnar, sem ekki vildi láta nafns síns getið, að vísbendingar væru um eldflaugarskot frá Norður-Kóreu. Unnið væri enn að því að afla staðfestingar á þeim grunsemdum. Norður-Kóreumenn hafa áður skotið í tilraunaskyni á loft eldflaugum sem þeir eru að prófa sig áfram með smíði á, í óþökk grannríkjanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Innlent Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Erlent Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Innlent Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Innlent Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Innlent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Innlent Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Innlent Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Innlent Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Sænskur blaðamaður dæmdur fyrir að móðga Erdogan Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Segja 4.700 Kimdáta hafa fallið eða særst Danakonungur til Grænlands í annað sinn á skömmum tíma Ungi morðinginn flúði nýverið af vistheimili Segir sveppaeitrunina hafa verið „hörmulegt óhapp“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Ungur maður handtekinn vegna morðanna í Uppsölum Fagnaði fyrstu hundrað dögunum í Hvíta húsinu Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Árásarmannsins enn leitað Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Rafmagn að koma aftur á: Íslendingar lýsa mikilli óvissu Spennan eykst milli Indlands og Pakistan Allt í rugli á Rauðahafi Hvetur Kanadamenn að kjósa sig Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Rafmagnsleysið „fordæmalaust“ en engar vísbendingar um tölvuárás Páfakjör hefst í næstu viku Umfangsmiklar og óútskýrðar rafmagnstruflanir á Íberíuskaga Mæðgur alvarlega særðar eftir sprengingu í úthverfi Stokkhólms Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Sjá meira