Erlent vinnuafl notað í hagstjórn 5. febrúar 2005 00:01
Fyrrverandi forstjóri Útlendingastofnunar segir Íslendinga ekki standa sig nógu vel í málefnum innflytjenda. Hann segir erlent vinnuafl á vissan hátt notað sem hagstjórnartæki. Georg Kr. Lárusson, fyrrverandi forstjóri Útlendingastofnunar, var meðal framsögumanna um málefni innflytjenda í ReykjavíkurAkademíunni í dag. Í máli hans kom fram að Íslendingar standa sig ekki nógu vel í þessum málaflokki. Dómsmálaráðherra hefði markað ákveðna stefnu með nýjum útlendingalögum en það væri ekki nóg. Önnur stjórnvöld þyrftu að koma þar að og sömuleiðis allt þjóðfélagið til þess að hægt væri að marka mætti málaflokkinn skýrar og betur og búa betur að því fólk sem kæmi inn í landið. Eins og fram kom hjá Georg þarf allt þjóðfélagið að koma að þessum málaflokki sem og öll ráðuneyti og heildarstefna þarf að liggja fyrir. Sú stefna hafi verið mörkuð hjá sumum sveitarfélögum og einstaka fyrirtækjum. Georg segir enn fremur að sú stefna sem dómsmálaráðuneytið hafi markað sé góð í dag. Hún sé alltaf umdeilanleg en hins vegar sé um ný lög að ræða sem alltaf þurfi að vera í endurskoðun. Ekki sé verið að setja lög sem muni gilda um aldur og ævi því málaflokkurinn þróist mjög hratt, t.a.m. hafi orðið gífurlegar breytingar í honum á síðustu tíu árum. Menn þurfi því að vera vel á verði og huga að öllu sem betur megi fara og horfa þá til landanna í kringum okkur. Georg segir Ísland opið land fyrir útlendinga og mun opnara en mörg önnur. Hann segir að á vissan hátt sé erlent vinnuafl notað sem hagstjórnartæki. Skortur sé á vinnuafli og því hafi verið leitað til útlanda eftir vinnuafli sem hafi auðvitað áhrif á hagstjórnina í landinu. Vitað sé að flestallir útlendingar sem komi til landsins veljist til láglaunastarfa og það sé ekki af ástæðulausu. Um sé að ræða störf sem Íslendingar vilji ekki sinna vegna þess að þau séu láglaunastörf. Þetta marki sín spor í íslenskt hagkerfi.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira