Innlent

Nýári fagnað við Kárahnjúka

Í dag verður kínverska nýárinu fagnað við Kárahnjúka en miðvikudaginn 9. febrúar lýkur hinu kínverska ári apans og ár hanans hefst. Til að fagna nýju ári verður kínverskur hádegisverður á boðstólum í aðalmatsal Impregilo á Kárahnjúkum í dag samhliða hefðbundnum hádegisverði. Á eftir verður skálað fyrir nýju ári og kínversk dagskrá verður í klúbbnum, kínversk bíómynd sýnd og boðið upp á karaókí. Starfsmönnum Impregilo verður boðið upp á flutning frá hinum minni búðunum þremur á Kárahnjúkum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×