Innlent

Fór betur en á horfðist

Fimm sluppu með minniháttar meiðsl í umferðaróhappi sem varð um áttaleytið í fyrrakvöld á Norðurlandsvegi í Skagafirði. Stór jeppabifreið rann til á hálku, endasnerist út af veginum og valt upp á nefið og svo aftur á bak. Fimm farþegar voru í bílnum, þrír fullorðnir og tvö börn. Tveir sjúkrabílar voru kallaðir út en meiðsl fólksins voru minniháttar sem þykir nánast kraftaverk. Allir farþegar voru í beltum eða barnabílstólum og telur lögreglan að það hafi ráðið úrslitum um að ekki fór verr.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×