Bæði hvatt til sparnaðar og eyðslu 17. apríl 2005 00:01
Á sama tíma og Landsbankinn ýtir undir aukinn sparnað landsmanna hvetur hann þá til að eyða meiru og jafnvel taka lán til að fara í ferðalög og kaupa sumarhús. Framkvæmdastjóri markaðssviðs bankans viðurkennir að ef til vill sé of langt gengið að hvetja menn til að taka ferðalán. Auglýsing Landsbankans þar sem landsmenn eru hvattir til að eyða í sparnað er áberandi í blöðum, á skiltum og á strætisvögnum þessa dagana. Þar er verið að auglýsa sparibréf bankans og er aðallega verið að hvetja þá einstaklinga, sem keyptu spariskírteini ríkissjóðs á sínum tíma, til að halda áfram að spara við innlausn bréfanna. En hvernig getur Landsbankinn ýtt undir sparnað landsmanna á sama tíma og hann ýtir undir eyðslu með því að bjóða lán af ýmsu tagi, eins og ferðalán og húsnæðislán? Hermann Jónasson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Landsbankans, segir að einfaldast sé að svara því þannig að starfsmenn bankans finni fyrir því þjóðin sé tilbúin að fara að huga að sparnaði eftir að hafa hugað að íbúðakaupum síðustu misseri. Það sé sýn Landsbankans að þeir viðskiptavinir sem séu í sparnaði séu líklegri til að vera í skilum og gangi betur í fjármálum sínum til framtíðar. Landsbankinn vilji ýta undir það með herferð sinni þar sem landsmenn séu hvattir til að eyða í sparnað á sama hátt og þeir eyði í eitthvað annað. Hermann segir brýnt að landsmenn byrji á því að spara áður en þeir eyði peningunum í annað, aðeins lítið brot af laununum fari í sparnaðinn og komi því ekki niður á buddunni. Hann segir að þótt verðbólga og þensla hafi einkennt efnahagslífið að undanförnu sé Landsbankinn ekki að ýta undir óþarfa eyðslu landsmanna með því að hvetja þá til að taka lán. Aðspurður hvort ekki sé fulllangt gengið að hvetja landsmenn til að taka sér lán til að fara í frí og ferðalög viðurkennir Hermann að það megi segja það. Hann myndi sjálfur ekki taka lán til að fara í frí og almennt sé fólk ráðlagt að spara og fara svo í frí. Aðstæður kunni þó að vera þannig hjá einhverjum að þeir þurfi að taka lán.
Fréttir Innlent Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Sjá meira