Ágreiningur ekki orsökin 7. febrúar 2005 00:01
P. Samúelsson ehf., sem rekur Toyota-umboðið hér á landi, hafnar því sem segir í tilkynningu frá nokkrum starfsmönnum að „djúpstæður ágreiningur innan fjölskyldu og meirihlutaeigenda P. Samúelssonar ehf.“ hafi leitt til þess að fyrrum forstjóri hafi þurft að láta af störfum. Níu stjórnendur í P. Samúelssyni hafa sagt upp störfum sínum vegna óánægju yfir því að eigendur fyrirtækisins ákváðu að láta Emil Grímsson framkvæmdastjóra fara. Úlfar Steindórsson, sem verið hefur stjórnarformaður, verður framkvæmdastjóri í hans stað og Páll Samúelsson verður stjórnarformaður. Emil hefur selt hlut sinn í fyrirtækinu en jafnframt keypt af því fyrirtækið Artic Trucks. Emil mun standa til boða starf fyrir Toyota í Evrópu. Eftir þvi sem fréttastofan kemst næst mun Ísland vera eina landið í Evrópu þar sem Toyota-fyrirtækið selur ekki bíla sína sjálft heldur um umboðsfyrirtæki. Fréttastofunni er ekki kunnugt um hvort einhverjar breytingar eru fyrirhugaðar á því hér á landi. Toyota-umboðið hefur verið eitt umsvifamesta bílaumboðið hér á landi um árabil og var síðasta ár besta rekstrarár þess frá upphafi. Í tilkynningu sem P. Samúelsson sendi frá sér fyrir stundu segir orðrétt: Í kjölfar breytinga á yfirstjórn P. Samúelssonar ehf., sem kynntar voru sl. föstudag lá fyrir að endurskoða og einfalda þyrfti alla yfirstjórn félagsins. Er sú vinna farin af stað. Hjá fyrirtækinu vinna um 150 frábærir starfsmenn. Þeir búa yfir mikilli sérþekkingu, færni og áratuga reynslu og er það þeim að þakka að Toyota hefur verið algengasta bílategundin í umferð hér á landi frá 1988. Stjórnendur P.Samúelssonar reiða sig á allt það góða fólk til frekari sóknar félagsins á næstu mánuðum og árum.Varðandi málefni einstakra starfsmanna sem kosið hafa að fara með sín mál í fjölmiðla vill fyrirtækið ekki tjá sig opinberlega. Það hafnar því hins vegar sem segir í tilkynningu frá nokkrum starfsmönnum að „djúpstæður ágreiningur innan fjölskyldu og meirihlutaeigenda P. Samúelssonar ehf.“ hafi leitt til þess að fyrrum forstjori hafi þurft að láta af störfum. Þetta er ekki rétt. Meirihlutaeigendur fyrirtækisins eru einhuga að baki þeim tímabæru breytingum sem nú eiga sér stað hjá P. Samúelssyni.P. Samúelsson hefur í um 30 ár farið með umboð fyrir Toyota bifreiðar á Íslandi. Allt frá upphafi hefur verið lögð mikil áhersla á góða þjónustu og hefur markmiðið ávallt verið að geta veitt viðskiptavinum víðtæka þjónustu til líftíðar. Svo verður áfram um ókomin ár.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira