Tveimur feðrum vísað úr landi 9. febrúar 2005 00:01
Tveimur erlendum feðrum sem kvæntir eru íslenskum konum hefur verið vísað úr landi eftir að breytingar á útlendingalögum tóku gildi síðasta vor. Þetta kom fram á Alþingi í gær í svari Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Samkvæmt lögunum þarf erlendur ríkisborgari í hjúskap með íslenskum ríkisborgara að vera orðinn 24 ára til að öðlast dvalarleyfi á grundvelli hjúskaparins. "Eitt er að fá dvalarleyfi, annað að vera vísað úr landi. Engum er vísað úr landi nema að baki þeirri ákvörðun sé sjálfstæð rannsókn," sagði Björn. "Annar mannanna á barn utan hjónabands en í hinum hjúskapnum er fyrir að fara stjúpbarni," sagði Björn. Fram kom að báðir hafa kært brottvísunarúrskurð Útlendingastofnunar til dómsmálaráðuneytisins. Katrín sagði þetta miklar tölur og minnti á að í umsögn Mannréttindaskrifstofu Íslands hefði komið fram þegar frumvarpið var lagt fram að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði túlkað 12. grein mannréttindasáttmála Evrópu þannig að í réttinum til að stofna til hjúskapar fælist einnig rétturinn til að búa saman. "Á Íslandi höfum við enga ástæðu til að setja svona ströng lög, sérstaklega undir þeim formerkjum að hér eigi að vernda einstaklinga gegn nauðungarhjónaböndum þegar síðan kemur í ljós að þegar þetta hefur átt við er um að ræða tvo karla sem hafa verið giftir íslenskum konum. Þetta hefur frekar átt við um karla en konur og hefur frekar verið beitt um karla en konur en þegar raunveruleg nauðungarhjónabönd eiga sér stað er frekar um konur að ræða en karla," sagði Katrín. "Einnig vil ég ítreka að mér þykir alvarlegt ef svona ströng regla skilur að föður og barn," sagði hún.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira