Brýn verkefni víðar en á Reykjanes 9. febrúar 2005 00:01 "
Réttlætingin fyrir því að frekari tvöföldun Reykjanesbrautarinnar var ákveðin þrátt fyrir að annars staðar sé umferð meiri og þyngri er fyrst og fremst vegna öryggisþátta," segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Ákveðið hefur verið að bjóða það verk út í vor meðan vegir á borð við Vesturlandsveg og Suðurlandsveg, þar sem umferð er mun þyngri og á köflum jafn hættulegar, bíða seinni tíma. Meðan margir hafa orðið til að fagna þessari ákvörðun ráðherra er þeir einnig til sem gagnrýna hana og benda á að svo virðist sem mikill þrýstingur frá Suðurnesjamönnum hafi vegið þungt við ákvarðanatökuna. Slíkt sé óeðlilegt þrátt fyrir að flestir geti verið sammála um að Reykjanesbrautin þurfi sannarlega að vera tvíbreið alla leiðina. Samgönguráðherra sjálfur segir að meginatriðið varðandi Reykjanesbrautina hafi verið öryggisþátturinn og einnig sé mikilvægt að hafa í huga að um hana fara flestir þeir ferðamenn sem hingað til lands koma og gert er ráð fyrir að þeim fjölgi til muna næstu árin. Helgi Helgason, staðgengill Einars Guðna Njálssonar, bæjarstjóra Árborgar, sem er í leyfi, segir sitt mat að forgangsröðun ráðherra sé undarleg. "Ég vil alls ekki gera lítið úr öðrum verkefnum á borð við tvöföldun Reykjanesbrautarinnar en sannleikurinn er sá að við hér í Árborg höfum löngum barist fyrir samgöngubótum hér á Suðurlandinu með litlum árangri og það virðist vera svo að þessar reglubundnu leiðir hafi minni áhrif en til að mynda sá þrýstingur sem almenningur á Suðurnesjum setti á ráðherrann vegna Reykjanesbrautar." Sveinn Kristinsson, forseti bæjarstjórnar Akraness, furðar sig einnig á forgangsröðun samgönguráðherra. "Ég vil óska Suðurnesjamönnum til hamingju með þennan áfanga en á sama tíma vekja athygli á að ríkið hefur verið að veita miklu fé þangað síðustu misseri og skemmst er að minnast viðbyggingar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem kostaði um þrjá milljarða króna. Ég dreg ekki í efa rök ráðherrans fyrir því að velja stækkun Reykjanesbrautar fram yfir aðra kosti en eitt verður yfir alla að ganga og að mínu viti ætti ráðherrann að líta nær sínum heimahögum hér á Vesturlandi."
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira