Um 1,5 - 2 milljarðar í fangelsin 9. febrúar 2005 00:01
Stefnt er að því að kostnaður við byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði og verulegar endurbætur þriggja annarra fangelsa fari ekki fram úr 1,5-2 milljörðum króna, að sögn Valtýs Sigurðssonar forstjóra Fangelsismálastofnunar. Unnið er nú af krafti við að útfæra grunnhugmyndir Fangelsismálastofnunar um framtíðarskipan fangelsa hér á landi, að sögn hans. Lokið hefur verið við að gera drög að stækkun fangelsisins á Akureyri og nemur kostnaðaráætlun 150 milljónum króna en þar af er breyting á húsnæði lögreglu upp á um 50 milljónir. Fangelsið verður stækkað um tvo klefa þannig að þar verði tíu klefar en megináhersla lögð á að gera það rekstrarhæft sem fangelsi, að sögn Valtýs, þar sem föngum verði sköpuð aðstaða til vinnu og útbúin aðstaða til heimsókna, sem engin er í dag. "Fangelsið er hvorki fugl né fiskur," sagði Valtýr. "Að mínu mati á að loka því ef það verður ekki gert mannsæmandi." Þá er verið að gera frumdrög að stækkun á Kvíabryggju um 5-6 pláss, þannig að þar yrði unnt að vista allt að 20 fanga að sögn Valtýs sem sagði fjölgun á opnum fangelsisplássum forgangsatriði. Kostnaðaráætlun lægi ekki fyrir um það verk, eða við Litla-Hraun og nýja fangelsisbyggingu á Hólmsheiði, en stefnt væri að því að frumteikningar og kostnaðaráætlun á "öllum pakkanum" lægi fyrir mánaðamót. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefði gefið grænt ljós á að hefja vinnu við þessa grunnþætti og væri henni nú hraðað eftir megni. "Samkvæmt fyrri drögum að Hólmsheiðarfangelsinu var reiknað með að það yrði venjulegt öryggis- og vinnufangelsi, sem kostaði einn og hálfan milljarð. Ekki var gert ráð fyrir breytingum í fangelsunum á Akureyri, Kvíabryggju eða Litla-Hraun í því dæmi. Þá var gert ráð fyrir að fangelsið í Kópavogi yrði starfrækt áfram en því viljum við loka. Ég er að vona að allur pakkinn kosti ekki meira en einn og hálfan til tvo milljarða, en þá er reiknað með verulegri uppbyggingu á Litla-Hrauni." Valtýr sagði að núverandi hugmyndir um nýja fangelsið miðuðu að því að þar yrðu afreitrunar- og meðferðardeild, sjúkradeild og gæsluvarðhaldsdeild. Með því ætti að gera menn hæfa til að fara í meðferð í upphafi afplánunarferilsins og vistast síðan áfram vímuefnalausir. Eins og staðan er í dag eiga fangar kost á að ljúka síðustu sex vikum afplánunar í vímuefnameðferð. Varðandi afplánun kvenna sagði Valtýr að ráð væri fyrir því gert að hægt væri að vista konur í öllum fjórum fangelsunum, á Litla-Hrauni, Kvíabryggju, Hólmsheiði og Akureyri, og þá á sérstökum deildum.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Fleiri fréttir Fagna „heimkomu“ Baldurs eftir margra vikna fjarveru Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira