Innlent

Forleggjarar gefa milljón

Félag íslenskra bókaútgefenda hefur gefið eina milljón króna til hjálparstarfs ABC barnahjálpar vegna hamfaranna við Indlandshaf. Sigurður Svavarsson formaður félagsins og Benedikt Kristjánsson framkvæmdastjóri afhentu Guðrúnu Margréti Pálsdóttur, frumkvöðli ABC barnahjálpar, upphæðina í janúar. Gjöfinni verður meðal annars varið til að koma upp bókasafni á El Shaddai barnaheimilinu við austurströnd Indlands, en þar dvelja nú 173 börn. Eva Alexander, forstöðukona barnaheimilisins, hefur verið beðin um að taka við munaðarlausum börnum í kjölfar flóðbylgjunnar og getur tekið við 25 börnum strax.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×