Segir frágang farms ófullnægjandi 9. febrúar 2005 00:01
Allar líkur benda til þess að frágangur á farmi Jökulfells, sem hvolfdi og sökk norðaustur af Færeyjum í fyrrakvöld, hafi verið ófullnægjandi þannig að farmurinn hafi kastast út í aðra síðu skipsins og valdið slysinu. Að mati sérfræðings um flutningaskip sem fréttastofa Bylgjunnar hefur rætt við var Jökulfell með millidekk í lestunum. Við þær aðstæður er erfiðara en ella að koma farmi á borð við iðnaðarstál tryggilega út í síðurnar báðum megin og hlaða svo jafnt á milli þannig að ekkert hreyfist þótt skipið lendi í veltingi. Í öðru lagi bendir sérfræðingurinn á að lestirnar hefi verið frysitlestir, en þá séu síðurnar klæddar með sléttri einangrun og engar festingar séu í þeim til að stífa farminn af. Í þriðja lagi geti skipinu ekki hafa hvolft vegna leka því atburðarásin hafi verið svo hröð að þeir sem björguðust rétt náðu að komast í flotgalla áður en skipinu hvolfdi og engin skipstjórnarmanna hafi gefið sér tíma til að tala í talstöð. Sérfræðingurinn telur því 99 prósenta líkur á að famurinnn hafi kastast út í aðra síðuna þannig að skipið hafi ekki náð að rétta sig aftur heldur farið á hvolf. Þetta er samhljóða þeirri skýringu sem skipverjarnir, sem bjargað var um borð í danska skipið Vædderen, hafa gefið skipherranum þar og Morgunblaðið hefur eftir honum. Þá er komið fram að þetta var fyrsta ferð skipstjórans með þetta skip. Ekkert hefur verið ákveðið um frekari leit að skipverjunum tveimur sem enn er saknað en flugvél frá danska hernum flaug yfir svæðið eftir birtingu í morgun. Leitarskilyrði á svæðinu eru slæm vegna veðurs og verður staðan metin upp á nýtt þegar líður á daginn. Fokker-vél Landhelgisgæslunnar sem leitaði á svæðinu í gær er til taks ef ósk um aðstoð berst.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Sjá meira