Aðalmeðferð í máli GT verktaka 4. maí 2005 00:01 >
Aðalmeðferð var í tveimur málum sem fjalla um atvinnuleyfi baltneskra starfsmanna hér á landi í Héraðsdómi Austurlands í gær. Önnur aðalmeðferðin var í máli Sýslumannsins á Seyðisfirði gegn Gísla G. Sveinbjörnssyni og GT verktökum en Gísli og GT verktakar eru ákærðir fyrir að hafa brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga með því að fá menn frá Lettlandi og Litháen til starfa hér á landi án þess að þeir hefðu tilskilin leyfi. Vörnin byggðist meðal annars á því að þeir hefðu ekki starfað hjá GT verktökum heldur fyrirtækinu Vislandia í Lettlandi. GT verktakar hefðu aðeins keypt þjónustu af því fyrirtæki. Verjandi Gísla og GT verktaka er Marteinn Másson lögmaður. Dómari hefur þrjár vikur til að kveða upp dóminn og má því búast við honum í lok maí. Hin aðalmeðferðin var í máli sýslumannsins gegn erlendum starfsmönnum GT verktaka. Ákærðu eru fjórir en tveir eru farnir af landi brott og ekki hægt að ljúka málinu gegn þeim. Einn Letti og einn Lithái mættu fyrir dóminn ásamt verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni hdl. Mennirnir eru ákærðir fyrir að brjóta gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga með því að starfa við akstur, viðhald og viðgerðir ökutækja fyrir Impregilo á Kárahnjúkum án þess að hafa atvinnuleyfi. Mennirnir neituðu sök. Verjandi byggði málsvörnina á því að mennirnir störfuðu tímabundið á Íslandi á grundvelli svokallaðra þjónustusamninga og því sé nóg að tilkynna þá inn í landið eins og gert var. Vinnuveitandi mannanna sé ekki GT verktakar heldur Vislandia í Lettlandi. Þá byggðist vörnin einnig á því að í lögum sé fyrirvari sem heimili borgurum nýju ESB-ríkjanna að dvelja hér og starfa án atvinnuleyfis í þrjá mánuði þótt það sé bannað í sex mánuði. Farbann mannanna rennur út 13. maí og má því búast við dómi fyrir þann tíma.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira