Dagskrárstjóri Rásar 2 segir upp 9. mars 2005 00:01
Fréttamenn á fréttastofum ríkisútvarpsins lýsa vanþóknun sinni á því sem þeir kalla ósæmileg afskipti útvarpsráðs af starfi fréttamanna með því að mæla með Auðuni Georg Ólafssyni í starf fréttastjóra Útvarps. Þeir mótmæla ákvörðun Markúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra að ráða Auðun og skora á hinn nýja starfsmann að taka ekki starfið, samkvæmt ályktun þeirra á fundi í gærkvöldi. Jóhann Hauksson, dagskrárstjóri Rásar 2 og einn umsækjendanna fimm sem forstöðumaður fréttasviðs mælti með, hefur sagt upp störfum. "Útvarpsstjóri hefur bitið höfuðið að skömminni með því að fara eftir áliti útvarpsráðs og ráða pólitískt þvert ofan í faglegt mat. Hann virðist hafa haft einhver önnur sjónarmið að leiðarljósi heldur en hagsmuni Ríkisútvarpsins," segir Jóhann og því segi hann upp störfum. Friðrik Páll Jónsson, annar umsækjendanna sem Bogi mælti með og varafréttastjóri sem gegnt hefur stöðu fréttastjóra frá því í desember, segir rök útvarpsráðs um að fréttastjóri beri ábyrgð á daglegum rekstri fréttastofu Útvarps fyrirslátt. Hann hafi setið tæplega hálfrar klukkustundar fund um fjármál frá því hann tók við starfinu.
Fréttir Innlent Ráðning Auðuns Georgs Mest lesið „Algjörlega alveg út í hött“ Innlent „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Umferðin færist inn á íbúðagötur Innlent Skipar Ísraelum að hætta að sprengja Erlent Diddy í fimmtíu mánaða fangelsisvist Erlent Vann á öllum deildum leikskólans Innlent Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Innlent Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Innlent Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Innlent Hamasliðar tilbúnir að sleppa gíslum og láta völd af hendi Erlent Fleiri fréttir Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Tillögurnar í leikskólamálum séu vonbrigði og uppgjöf Jörð skelfur í Krýsuvík og Þjóðaröryggisráð fundaði í morgun Fólk að bugast þar til hætt var að manna vaktir á föstudögum Snorri etur kappi við Bergþór og Ingibjörgu Hafnaði kæru Sameindar vegna Konukots í Ármúla Ingibjörg tekur slaginn við Bergþór Skjálftahrina við Krýsuvík og Kleifarvatn Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Bergþór vill verða varaformaður Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Rauk upp úr flugvél Jet2 Loka leikskóladeild á Stöðvarfirði vegna manneklu Sjá meira