Stefnan enn herskárri? 16. nóvember 2004 00:01
Condoleeza Rice, þjóðaröryggisráðgjafi Bush, tekur við embætti bandaríska utanríkisráðherrans af Colin Powell. Búist er við því að enn frekari harka færist í utanríkisstefnu Bandaríkjanna við ráðherraskiptin. Rice stendur á fimmtugu, er fyrrverandi yfirmaður í Stanford háskóla og náin vinur Bush fjölskyldunnar, en hún hóf sinn pólitíska feril í ríkisstjórn Bush eldri. Hún er sérfræðingur í málefnum fyrrverandi Sovétríkjanna og varnarmálum, en síðustu árin hefur hún aðallega unnið að samningum um kjarnorkumál við Norður Kóreu og Íran og er sérfræðingur stjórnarinnar þegar kemur að friðarsamningum Palestínu og Ísraels. Búast má við því að eitt meginverkefni Rice í nýju embætti verði að sjá til þess að friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs þokist af stað á nýjan leik. Rice er reyndar talin hafa haft meiri áhuga á starfi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, en Donald Rumsfeld situr þar sem fastast og sýnir ekki á sér fararsnið. Rice hefur gengið í það erfiða starf að sameina sjónarmið ólíkra afla innan Bandaríkjastjórnar: annars vegar herskáu haukanna með Rumsfeld í fararbroddi og hins vegar hófsamari manna eins og Powell, en þeir tveir hafa verið á öndverðum meiði hvað varðar öll helstu utanríkismál Bandaríkjanna síðustu árin. Dennis Johnson, prófessor við George Washington háskóla segir að ákvarðanir hafi almennt verið teknar af yfirvöldum í Pentagon og öryggisstjórn Hvíta Hússins, en Colin Powell hafi jafnan verið útundan. Powell naut aldrei verulegs stuðnings í ríkisstjórn Bush, en er að minnsta kosti talin hafa séð til þess að andstæð sjónarmið náðu eyrum forsetans. Nú þegar hann hverfur af vettvangi er einsýnt að haukarnir ná algerum yfirráðum og utanríkisstefna Bandaríkjastjórnar verður, ef eitthvað er, enn herskárri og einhliða en áður.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira