Fullreynt að ná sáttum 25. nóvember 2004 00:01
Magnús Brandsson, sparisjóðsstjóri í Ólafsfirði, segir að brýnt hafi verið að nútímavæða Sparisjóð Skagafjarðar, sem áður hét Sparisjóður Hólahrepps. Sparisjóðurinn hafi verið lítill með sterkar rætur í sveitinni en þegar nýir stofnfjáreigendur hafi komið inn hafi þeir viljað nútímavæða sjóðinn. Það hafi haft áhrif á tilfinningar gamalla stofnfjáreigenda og oft hafi verið erfitt að ræða málin. Fullreynt hafi verið að ná sáttum. Gjáin hafi verið svo djúp. Á stjórnarfundi sparisjóðsins í vikunni var stór hluti af stofnfé KS seldur til stjórnenda KS og FISK og eiginkvenna þeirra auk Sparisjóðs Ólafsfjarðar og Sparisjóðs Mýrasýslu til að atkvæðin nýttust sem best á fundi stofnfjáreigenda. Valgeir Bjarnason, fv. stjórnarmaður, taldi um ólöglegan gjörning að ræða. Á fundi stofnfjáreigenda daginn eftir var nafni sparisjóðsins síðan breytt, stofnféð aukið um 66 milljónir og ný stjórn kosin. Valgeir taldi um yfirtöku að ræða en því hafnar Magnús algjörlega. "Það voru tveir listar í framboði. Gömlu stofnfjáreigendurnir lögðu sinn lista fram fyrirfram og báðu um listakosningu. Þeir röðuðu sér á þann lista. Á hinum listanum mynduðu nýju stofnfjáreigendurnir lista með hæfu fólki. Þarna voru fagaðilar sem vita allt um viðskipti og hafa reynslu í viðskiptaheiminum," segir Magnús. Sparisjóður Skagafjarðar er rúmlega aldar gamall. Hann var rekinn "í skúffu hjá einum bóndanum í sveitinni" fram til 2000, að sögn Magnúsar. "Hann var líklega eina fjármálastofnunin í heiminum sem var varin gegn 2000 vandanum því að það var engin tölva. Síðan kom KS inn og aðrir stofnfjáreigendur út af innheimtuverkefni fyrir Íbúðalánasjóð. Þetta verkefni varð þess m.a. valdandi að hluti Íbúðalánasjóðs var fluttur á Sauðárkrók og skapaði þetta 15-17 störf auk margfeldisáhrifa. Fjármálastofnun með 22 milljónir í stofnfé getur ekkert gert. Valið stóð milli þess að loka eða auka stofnfé. Við tókum þá ákvörðun að byggja upp frekar en deyða."
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira