Lækkun gjaldsins veltur á ríkinu 25. nóvember 2004 00:01
Það myndi engu breyta um veggjaldið um Hvalfjarðargöng þótt Spölur endurfjármagnaði erlend lán sín. Innlendar skuldir Spalar eru hins vegar við ríkissjóð þannig að það stendur upp á ríkið að skapa svigrúm til lækkunar veggjaldsins. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra greindi frá athugun Ríkisendurskoðunar á málefnum Spalar í gær og hafði upp úr skýrslu stofnunarinnar að með því að endurfjármagna erlend lán gæti fyrirtækið sparað vaxtakostnað. Eftir því sem fréttastofan kemst næst eru eftirstöðvar Spalar erlendis, í þremur myntum, u.þ.b. 2,8 milljarðar króna á 6,8% föstum vöxtum. Kæmi til endurfjármögnunar myndi kostnaður vegna uppgreiðslu þess láns nema 500-550 milljónum króna, þannig að við núverandi gengisaðstæður myndi kostnaðurinn éta upp allan sparnað af heldur lægri vöxtum. Ráðherra hafði einnig eftir Ríkisendurskoðun að með því að skuldbreyta innlendum lánum væri hægt að spara raunkostnað um 50 milljónir. Þau lán hefur Spölur að mestu frá ríkinu á 6% vöxtum auk verðtryggingar sem þýðir, í núverandi verðbólgu, eitthvað um 9% vexti. Sem sagt, það væri hugsanlegt að spara rekstrarkostnað Spalar um 50 milljónir á ári en það virðist fyrst og fremst velta á ríkinu, eða hvort ríkið sjálft vil lækkka vextina svo Spölur geti lækkað veggjaldið. Í skýrslunni munu heldur ekki vera gerðar athugasemdir við að Spölur haldi illa utan um reksturinn. Fréttastofan fékk skýrsluna ekki afhenta fyrir hádegi.
Fréttir Innlent Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira