Skoðun

Sýnum borgarstjóra drenglyndi

Olíusamráðið - Anna Vilborg Magnúsdóttir Ég vil þakka Guðmundi Guðmundssyni fyrir hans góðu grein í Fréttablaðinu 7. nóvember sl. Þar eru komnar á blað þær hugsanir, sem ég vildi sjá á prenti. Ég vil ekki þurfa að lifa það, að óréttinum sé sýnd friðhelgi og réttlætið að fórna því litla peði sem Þórólfur borgarstjóri er í olíumálinu. Að honum er hart vegið á meðan aðalmennirnir í þessu máli lifa eins og kóngar. Hvers vegna eru þeir ekki látnir segja af sér og biðja þjóðina fyrirgefningar? Þar hefur Þórólfur Árnason sýnt drenglyndi og heiðarleika og á skilið fyrirgefningu. Nú bið ég borgarfulltrúa og þjóðina mína að sýna sama drenglyndi. Ég gleymi því ekki hversu mikið það gladdi mig, að Vestmannaeyingar fyrirgáfu Árna Johnsen. Það hefur eflaust hjálpað honum að verða sannur drengur. Ég held að það séu ekki margir í þjóðfélaginu, sem geri ekki eitthvað rangt. Mér varð að orði, þegar yfirmaður minn sýndi mér og öðrum hroka: Hvers virði eru veraldargæðinog valdanna stærsti bitinnog glansandi glitofnu klæðin,ef götótt er sálin og slitin. Það er sælt að fyrirgefa.



Skoðun

Skoðun

Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðar­efni

Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar

Sjá meira


×