Fundur þrátt fyrir uppsögn 15. nóvember 2004 00:01
Colin Powell hefur sagt af sér sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en mun gegna embættinu áfram þar til eftirmaður er fundinn. Davíð Oddsson, forsætisráðherra á fund með Powell á morgun. Brotthvarf Powells kemur ekki á óvart því farið var að ræða um afsögn hans löngu fyrir forsetakosningarnar, í Bandaríkjunum. Colin Powell er líklega sá ráðherra bandarískur sem nýtur mestrara virðingar á alþjóðavettvangi. Hann hefur hinsvegar verið mjög upp á kant við haukana í Ríkisstjórn George Bush, þá Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra, og Dick Cheney varaforseta. Colin Powell er fyrrverandi hershöfðingi og yfirmaður bandaríska herráðsins, og sem slíkur var það hann sem fór með yfirstjórn hersins í fyrra Persaflóastríðinu, þegar Saddam Hussein var rekinn frá Kúveit. Þar útfærði hann Powell-kenninguna um að ef óhjákvæmilegt væri að fara í stríð ætti að gera það með ofurefli liðs, og beita öllum hernaðarmætti Bandaríkjanna. Þessu sneri Donald Rumsfeld á haus, þegar hann skipulagði síðari innrásina í Írak. Hann vill koma upp léttum og viðbragðssnöggum herafla. Innrásin sjálf tókst með miklum ágætum, en eftir það kom í ljós að bandarísku hermennirnir voru alltof fáir til þess að geta haldið uppi lögum og reglu, í landinu. Búist er við að Powell sitji áfram í utanríkisráðuneytinu fram í janúar, þegar George Bush sver embættiseið öðru sinni. Hver eftirmaður hans verður veit enginn. Einn mögulegur er Paul Wolfowich, aðstoðarutanríkisráðherra, sem er mikill haukur og harðlínumaður. Einnig hafa verið nefnd til sögunnar Condoleeza Rice, öryggismálaráðgjafi forsetans og John Danford, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður, sem er sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, er kominn til Washington og er ráðgerður fundur hans og Colin Powells, á morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Fleiri fréttir Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Sjá meira