Kveikt í skrifstofum á Gasa 18. júlí 2004 00:01
Liðsmenn Fatah-hreyfingar Jassers Arafats, forseta Palestínu, kveiktu í skrifstofum heimastjórnar Palestínumanna á Gasasvæðinu í dag.Mikil reiði er meðal Palestínumanna vegna þeirra breytinga sem Arafat gerði á öryggissveitum heimastjórnarinnar. Stjórnarkreppa er í landinu og neyðarástand ríkir í Gasaborg. Tvær mótmælagöngur hafa farið fram í Gasaborg síðasta sólarhring. Fólkið hrópaði slagorð gegn Arafat og mótmælti spillingu innan stofnana palestínsku heimastjórnarinnar og jafnframt þeim breytingum sem forsetinn hefur gert á yfirstjórn öryggissveita stjórnarinnar. Sú ákvörðun Arafats að skipa frænda sinn, Mousa Arafat, sem yfirmann öryggsstofnana er harðlega gagnrýnd. Með því að brenna tvær skrifstofubyggingar heimastjórnarinnar hafa liðsmenn Fatah-hreyfingar Arafats komið þeim skilaboðum áleiðis að þeir hafni þessum breytingum alfarið. Mousa Arafat, sem áður var yfirmaður leyniþjónustu Palestínumanna, er þó einn af stofnendum Fatah-hreyfingarinnar. Markmið Arafats með breytingum á innviðum örygssveitanna var að einfalda skipulag þeirra, að kröfu bæði Bandaríkjamanna og Ísraela, og liðka þannig fyrir friðarumleitunum. Fréttaskýrendur segja aðgerðir uppreisnarmanna tengjast valdabaráttu innan öryggissveitanna en að krafa hins þögla meirihluta Palestínumanna sé að lög og reglu verði komið á með lýðræðislegum kosningum. Forsætisráðherra Palestínu sagði af sér í gær en ríkisstjórn hans hefur gagnrýnt Arafat fyrir að halda um stjórnartaumana og koma í veg fyrir umbætur. Arafat neitar að taka mark á uppsögninni. Þeir hittust á fundu í dag en hvorugur þeirra hefur skipt um skoðun. Myndin er frá mótmælum Fatah-hreyfingarinnar um helgina.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira