Fjöldasjálfsmorð í Japan 12. október 2004 00:01
Lögreglan fann í gær lík níu ungra Japana sem talið er að hafi framið sjálfsmorð saman. Unga fólkið hafði komið litlum kolaofni fyrir bílnum og lést af koltvísýringsmengun. Lík fjögurra ungra manna og tveggja kvenna fundust í bíl í vesturhluta Tokíó og lík tveggja ungra kvenna fundust á sama tíma í bíl í suðurhluta borgarinnar. Ekki er enn vitað hvort málin tvö tengist en hins vegar er talið víst að fólkið hafi kynnst í gegnum netsíðu um sjálfsmorð. Nokkur aukning hefur verið í sjálfsmorðum sem rekja mátt hefur til slíkra síðna á Netinu. Samkvæmt lögreglunni leitar fólk á þessar síður til að þess að finna einhvern sem er tilbúin að deyja með þeim. Á síðunum eru einnig leiðbeiningar um það hvernig eigi að fremja sjálfsmorð og hvar það sé hentugast að gera það. Málið hefur vakið gríðarmikla athygli í Japan. Þarlend yfirvöld eru nú að velta því fyrir sér hvort ekki sé rétt að loka þessum netsíðum en þrýst á það víða úr samfélaginu. Forsvarsmenn síðnanna telja þær hins vegar eiga fullan rétt á sér. Segja þeir að á síðunum sé ekki verið að hvetja til sjálfsmorða heldur sé síðunum haldið úti af samúð vðið fólk sem sé búið að gefast upp á lífinu. Í fyrra frömdu ríflega 34 þúsund Japanar sjálfsvíg sem er um sjö prósent aukning frá árinu 2002. Sérfræðingar segja að efnahagserfiðleikar og aukin einungrunarkennd ungra Japana sé helsta skýringin á þessari aukningu milli ára. Í Japan er til hugtak sem nær yfir einangrað ungt fólk. Er það kallað "hikikomori" sem útleggst sem sá sem aldrei yfirgefur herbergið sitt og leitar sér einungis að félagsskap og skemmtun á Netinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira