Erlent

Fellibylur í Norður-Karólínu

Fellibylurinn Alex olli flóði í Norður-Karólínu ríki Bandaríkjanna í gær. Hundruð heimila og bíla urðu vatninu að bráð og rafmagn fór af hjá þúsundum íbúa. Íbúar á svæðinu segja þetta versta veður sem hafi gengið yfir svæðið í þrjátíu ár. Vindhraði náði 160 kílómetra hraða á klukkustund. Nú er árstími fellibylja að ganga í garð og er Alex sá fyrsti á Atlansthafinu þetta árið. Styrkleiki hans var metinn tveir á kvarðanum 1-5. Samkvæmt skilgreiningu veðurfræðinga getur slíkur fellibylur valdið skemmdum á gluggum og hurðum og fellt tré. Á miðnætti var stormviðvörun afturkölluð og klukkan þrjú í nótt var Alex kominn niður í 28 kílómetra á klukkustund. Hægt er að sjá myndir frá svæðinu úr morgunsjónvarpi Stöðvar 2 með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×