Erlent

Arabískir málaliðar gera árásir

Uppreisnarmenn í Vestur-Súdan segja að arabískir málaliðar hafi gert árásir í Darfúr-héraði með stuðningi súdönsku ríkisstjórnarinnar. Þeir segja að ríkisstjórnin í Súdan hafi veitt yfir sex þúsund málaliðum stöðu í lögreglunni og gefið þeim einkennisbúninga og vopn. Friðarviðræður hafa staðið yfir milli uppreisnarmanna og stjórnvölda en málaliðarnir hafa haldið áfram árásum í Darfúr-héraði þrátt fyrir yfirlýst vopnahlé. Mannréttindasamtök saka stjórnvöld um að styðja við bakið á árásum málaliða en stjórnvöld neita ásökunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×