Erlent

36 manns krömdust til dauða

Að minnsta kosti þrjátíu og sex manns krömdust til dauða þegar eldsneytistrukkur rann út af þjóðvegi og inn í mannmergð á markaðstorgi í Nígeríu í dag. Dekk sprakk á bílnum og rakst hann á þrjá kyrrstæða bíla áður en hann lenti á fólkinu. Fjöldi manns lést samstundis en aðrir á spítala í kjölfarið. Fimmtán eru enn sagðir alvarlega slasaðir. Alvarleg slys eru algeng á vegum í Nígeríu og lögreglan segir þau oft vera vegna þess að flutningabílar eru ofhlaðnir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×