Þúsund látnir af völdum flóða 26. júlí 2004 00:01
Nær þúsund manns hafa látið lífið í miklum flóðum í Suður-Asíu síðasta mánuðinn. Um tveir þriðju hlutar Bangladess eru undir vatni og eru flóðin þar þau verstu í tæpan áratug. Nærri þúsund manns hafa látið lífið í monsúnflóðum í Suður-Asíu sem staðið hafa yfir síðan í lok síðasta mánaðar. Verst er ástandið í Bangladess þar sem nær þrjú hundruð hafa látið lífið og á Indlandi þar sem tala látinna er á milli fimm og sex hundruð. Einnig hafa rúmlega hundrað Nepalir og nokkrir Pakistanar látist. Flóðin eru árlegur viðburður og urðu 1.500 manns að bana frá júní og fram í október á síðasta ári. Margir telja þó flóðin nú í ár óvenju slæm. Flóðin virðast þó sumstaðar í rénum og reynt verður að koma í veg fyrir sjúkdómafaraldra af völdum flóðanna á næstu vikum. Tveir þriðju hlutar Bangladess eru undir vatni en þar létust 58 í gær þegar ár í nágrenni höfuðborgarinnar Dhaka flæddu yfir bakka sína. Flóðin eru þau verstu í Bangladess í tæplega áratug og hafa áhrif á líf um tuttugu milljóna. Vatn þekur nær helming höfuðborgarinnar en þar búa um tíu milljónir. Meðal hverfa sem rýmd hafa verið er helsta verslunarhverfi bogarinnar. Reynt hefur verið að koma í veg fyrir að ár flæði yfir bakka sína og vinna verkamenn og sjálfboðaliðar hörðum höndum að því að stafla upp sandpokum til þess að mynda flóðgarða. Einnig hefur verið reynt að koma matvælum, lyfjum og fatnaði bæði til strandaglópa og þeirra sem neyðst hafa til þess að yfirgefa heimili sín og leita skjóls í opinberum byggingum. Helstu dánarorsakir af völdum flóðanna eru drukknun, raflost af völdum eldinga eða ónýtra rafmagnstækja auk þess sem fjöldi smitsjúkdóma hefur skotið upp kollinum og kostað fjölda mannslífa.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira