Langt komnir með þróun kjarnavopna 18. nóvember 2004 00:01
Íranar eru langt komnir með þróun flugskeyta sem geta borið kjarnaodda. Þessu heldur Colin Powell fram. Sérfræðingar segja líkur á að athygli Bandaríkjastjórnar beinist í vaxandi mæli að Íran. Bandaríkjamenn telja sig hafa upplýsingar undir höndum sem benda til þess að Íranar vinni að þróun flugskeyta sem borið geta kjarnaodda. Colin Powell, fráfarandi utanríkisráðherra, kveðst hafa séð upplýsingar sem bendi til þess að Íranar séu nær því að ljúka þróunarvinnu en áður hefur verið talið. Löngum hafi verið vitað, að stjórnvöld í Íran vilji þróa slík vopn, og nú séu sannanirnar fyrir hendi. Hópur íranskra útlaga tók í sama streng í gær, og greindi frá því að stjórnvöld í Íran hefðu keypt úran sem nota mætti til smíði kjarnorkusprengju og auðgi það á stað, sem kjarnorkueftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna viti ekkert um. Að auki hafi stjórnvöld keypt upplýsingar um smíði kjarnorkuvopna frá pakistönskum vísindamanni, sem áður hefur viðurkennt að hafa selt Líbýustjórn samskonar upplýsingar. Bandaríkjamenn hafa um hríð þrýst á um að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna taki kjarnorkumál Írana til skoðunar og hafa nefnt viðskiptaþvinganir í því sambandi. Evrópuþjóðir hafa þó staðið í vegi fyrir þessum hugmyndum og gengu nýlega frá rammasamkomulagi sem gerir ráð fyrir að Íransstjórn hætti hluta kjarnorkuáætlunar sinnar. Íranar segjast einingis nota kjarnorku til raforkuframleiðslu. Alþjóða kjarnorkumálastofnunin staðfesti á þriðjudaginn, að Íranar hefðu ekki notað geislavirka málma til smíði vopna. George Bush, forseti Bandaríkjanna, nefndi Íran sem eitt af öxulveldum hins illa á sínum tíma og stjórnmálaskýrendur vestan hafs segja líkur á að Íran verði helsta vandamál utanríkisstefnu Bush á næsta kjörtímabili.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira