Erlent

Gíslatökum linnir ekki

Hryðjuverkahópur Abu-Musab al-Zarqawi linnir ekki látum og heldur áfram gíslatökum og hótunum. Nýjasti gíslinn er vörubílstjóri frá Sómalíu, sem rænt var í morgun, þegar hann var við vinnu sína hjá fyrirtæki frá Kuwait, sem starfar í Írak. Manninum er hótað lífláti hætti fyrirtæki hans ekki starfsemi sinni í Írak. Gíslatökur hafa verið tíðar í Írak að undanförnu og í gær var staðfest að tveir Pakistanskir gíslar, sem teknir voru fyrir sex dögum, hafi verið líflátnir. Þá var lík hins búlgarska Georgi Lazov, sem afhöfðaður var fyrir skemmstu, flutt til Búlgaríu með herflugvél í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×