Tólf féllu í bardaga í Jeddah 6. desember 2004 00:01
Tólf lágu í valnum eftir bardaga á ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í sádi-arabísku hafnarborginni Jeddah. Bardaginn braust út eftir að hópur vígamanna, sem grunaðir eru um tengsl við al-Kaída, braut sér leið inn í ræðismannsskrifstofuna og náði henni á sitt vald. Fimm sádi-arabískir starfsmenn sendiráðsins, fjórir þjóðvarðliðar og þrír árásarmenn féllu áður en yfir lauk. Árásin fylgir í kjölfar fjölda árása sem hafa verið gerðar á vestræna menn og vestræn skotmörk í Sádi-Arabíu síðustu nítján mánuði, þær árásir hafa kostað um níutíu manns lífið. Árásin í gær er þó fyrsta slíka árásin sem er gerð á sendiráð eða ræðismannsskrifstofu erlends ríkis. Í fyrstu var talið að árásarmennirnir hefðu tekið átján starfsmenn sendiráðsins í gíslingu. Síðar kom í ljós að þeir höfðu lokað sig af í hluta húsnæðisins og biðu þess þar að öryggissveitir kæmu þeim til hjálpar. Sprengingar heyrðust og mikið var skotið af hríðskotarifflum "Árásirnar í Sádi-Arabíu minna okkur á að hryðjuverkamenn eru enn í vígahug," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti eftir árásina. "Þeir vilja að við förum frá Sádi-Arabíu, þeir vilja að við förum frá Írak, þeir vilja þreyta okkur og hræða."
Erlent Fréttir Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Fleiri fréttir Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Sjá meira