Fuglaflensan vofir yfir 25. nóvember 2004 00:01
Fuglaflensufaraldur vofir yfir jarðarbúum. Óttast er að ekkert bóluefni verði til þegar inflúensan dynur yfir. Ef veikin hefði svipuð áhrif hér og landi og spánska veikin hafði í byrjun síðustu aldar létust um þrjú þúsund Íslendingar og um hundrað þúsund veiktust. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur varað við því að fuglaflensa sem geisað hefur í Asíu geti leitt til mannskæðs inflúensufaraldurs sem gæti herjað á allt að þriðjung jarðarbúa. Stofnunin telur að á milli 2-7 milljónir manna geti látist af völdum flensunnar og allt að þriðjungur jarðarbúa veikst. Óttast er að þetta gæti orðið svipaður faraldur og spánska veikin sem geisaði í heiminum árið 1918 og varð um tuttugu milljónum manna að aldurtila. Tíu þúsund af um 15 þúsund Reykvíkingum veiktust af inflúensunni á mjög skömmum tíma. Talið er að ef fuglaflensan berst manna á milli geti hún orðið að heimsfaraldri á skömmum tíma. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir marga telja að tími sé kominn á fuglaflensuna núna hér á landi. Hann líkir henni við spánsku veikina að því leytinu til að flensan hefur slæm áhrif á ungt og frískt fólk með hárri dánartíðni. Að sögn Haraldar þýða yfirfærðar afleiðingar spánsku veikinnar á nútímasamfélagið á suðvesturhorni landsins að u.þ.b. hundrað þúsund manns myndu veikjast og um þrjú þúsund deyja. Þar af væri helmingurinn á aldrinum 20-40 ára. Heilbrigðisyfirvöld hér á landi taka mið af viðbragðsstigum vegna influensufaraldra sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gefur út, og ef ástæða þykir til er gripið til sóttvarnaraðgerða á borð við einangrun og sóttkví. Einungis takmarkað magn er til af inflúensulyfjum í heiminum og segir Haraldur að menn óttist að bóluefni verði ekki til þegar fuglaflensan dynur yfir. Hann líkir ástandinu við biðina eftir Suðurlandsskjálftanum stóra eða Kötlugosi - það er ekki spurning um hvort þetta ríður yfir heldur hvenær.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Sjá meira