Innlent

Borgi 7,5 milljónir í bætur

Auður Laxness hefur stefnt Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni fyrir ritstuld og krefst samtals sjö og hálfrar milljóna króna bóta. Miklar deilur urðu síðusta vetur um fyrsta bindi Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um ævi Halldórs Laxness. Hannes var sakaður um slæleg vinnubrögð, að nota tilvitnanir úr bókum Halldórs án heimilda og að geta ekki heimilda annarra fræðimanna sem skrifað hafa um Nóbelsskáldið. Nú hefur Auður Laxness, ekkja Halldórs og handhafi höfundarréttar bóka hans stefnt Hannesi Hólmsteini fyrir ritstuld. Málið verður tekið fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Að sögn fjölskyldu skáldsins hefur farið óhemjumikil vinna í að skoða málið vel og vandlega til að undirbúa málsóknina því eftir að málverkafölsunarmálið fór eins og það fór hafi margir misst trúna á réttarkerfið. Segja þau að líklega séu um 270 tilfelli af hreinum ritstuld í bók Hannesar Hólmsteins en stefnan tiltekur 120 dæmi sem talin eru borðleggjandi að mati stefnanda. Auður krefst þess að Hannes greiði sér 2,5 milljónir í miskabætur og fimm milljónir vegna hagnaðar af bókasölunni. Hannes hafi margsinnis lýst því í fjölmiðlum að hann hafi selt fjögur þúsund eintök af bókinni Halldór og að það beri að gera hagnaðinn allan upptækan í ljósi ritstuldsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×