Innlent

29 umsóknir

29 sóttu um fjögur laus störf í yfirstjórn Reykjavíkurborgar en þar hafa staðið fyrir dyrum miklar skipulagsbreytingar. Meðal umsækjenda um stöðu sviðsstjóra á framkvæmdasviði er Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri. Meðal annarra umsækjenda eru: Garðar Lárusson, sem hefur starfað við Friðargæslu í Afganistan. Guðrún S. Hilmisdóttir verlfræðingur hjá Gatnamálastofu. Óskar Örn Jónsson verkfræðingur hjá AV rekstrarráðgjöf. Ólafur Bjarnason forstöðumaður Verkfræðistofu umhverfis- og tæknisviðs borgarinnar, Jóhann Einarsson markaðsstjóri hjá Fróða og Kristinn J. Gíslason deildarstjóri Fasteignastofu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×