Flestir fá eitthvað 13. október 2005 15:02
Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, telur að fara þurfi vel yfir ríkisútgjöldin með sparnað og hagræðingu í huga þegar skattalækkun ríkisstjórnarinnar tekur gildi. Ekki þurfi endilega að skera niður í útgjöldum til heilbrigðis- og velferðarmála. „Þetta geta verið liðir eins og atvinnumálin, til dæmis landbúnaðarmál og óbeinir styrkir til atvinnuveganna. Mér dettur í hug sjómannaafsláttur, þó að ríkisstjórnin hafi að vísu gefið loforð um að hann verði áfram. Og svo kemur til greina að spara í yfirstjórn ríkisins, til dæmis í rekstri ráðuneyta og í utanríkisþjónustunni. Einnig er hægt að fresta framkvæmdum, til dæmis vegaframkvæmdum og fjárfestingum hins opinbera,“ segir hann. Hvað varðar þá gagnrýni að skattalækkunin gagnist þeim tekjuhæstu í þjóðfélaginu mest segir Tryggvi Þór að sér sýnist flestir fá eitthvað. „Breytingarnar gagnast helst þeim sem borga skatta, ekki þeim sem ekki borga skatta og fá ekki barnabætur. Þeir sem borga hæstu skattana munu eðlilega hagnast mest að krónutölu,“ segir hann. Tryggvi Þór hefur ekki miklar áhyggjur af því hvort almenningi sé treystandi til að hafa meira milli handanna. „Þetta er mismunandi. Hluti fjárins fer í neyslu og hluti fer í aukinn sparnað. Sumir nota alla peningana í neyslu, aðrir fá tækifæri til að greiða niður skuldir og enn aðrir nota tækifærið til að setja peninga í sparnað. Ég held að það sé heilbrigðast og best að treysta fólki til að vita sjálft hvað er því fyrir bestu.“
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira