Neita samstarfi um herþjálfun 19. nóvember 2004 00:01
Þrátt fyrir að öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafi samþykkt að bandalagið tæki að sér þjálfun íraskra herforingja, í Írak, neituðu í það minnsta sex aðildarríkjanna, Belgía, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Spánn og Þýskaland, að senda hermenn til Írak til að þjálfa herforingja. Þau bönnuðu hermönnum sínum í stjórnstöðvum Nató einnig að taka nokkurn þátt í aðgerðinni.. Neitun aðildarríkjanna sex fer mjög í taugarnar á Bandaríkjastjórn að því er AFP fréttastofan hafði eftir ónafngreindum háttsettum embættismanni í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Einkum fer afstaða Þjóðverja fyrir brjóstið á Bandaríkjastjórn þar sem þeir telja afstöðu Þjóðverja brjóta niður samstöðu Natóríkja um þjálfun íraskra herforingja. Ekki er nóg með að ríkin sex neiti að senda hermenn til Írak heldur banna þau herforingjum sínum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins einnig að taka nokkurn þátt í verkefninu. Það fer jafnvel meira í taugarnar á Bandaríkjamönnum en það að ríkin neiti að senda hermenn til Írak, sem þeir áttu í sjálfu sér ekki von á að sum ríkjanna myndu gera. Sendiherrar allra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu áætlunina um þjálfun íraskra hermanna án umræðu á fundi sínum á miðvikudag. Þá héldu Bandaríkjamenn og aðrir þeir sem ætla að senda hermenn til Írak að vandinn væri leystur. Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er sagður ósáttur við að ríkin standi í vegi fyrir samstarfi um þjálfun íraskra herforingja. Í gær hvatti hann öll aðildarríki bandalagsins að láta sitt af höndum rakna. "Atlantshafsbandalagið vinnur nú að því að setja upp herskóla fyrir íraskra herforingja. Ég hvet öll bandalagsríkin til að taka þátt í því ferli" sagði de Hoop Scheffer þar sem hann var staddur í Lettland en ekki var útlit fyrir að honum yrði að ósk sinni.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira