Rússar með nýjar kjarnorkuflaugar 17. nóvember 2004 00:01
Þeir sem töldu endalok Kalda stríðsins þýða endalok vopnakapphlaupsins virðast hafa haft rangt fyrir sér. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, boðar nýja gerð kjarnorkusprengja, sem eiga að geta komist fram hjá stjörnustríðsskildi Bandaríkjanna. Pútín hefur ítrekað heitið því, að endurreisa Rússland sem hernaðarveldi, en undanfarinn áratug eða svo hefur rússneski herinn hálfpartinn fjarað út, sökum agaleysis og fjárskorts. Það kom því mörgum á óvart að Pútín skildi í morgun tilkynna um þróun nýrrar tegundar kjarnorkuvopna. Hann sagði þá að áfram yrði haldið að byggja upp rannsóknir og þróun á kjarnorkuflaugum og vonast væri til að innan skamms yrðu tekin í notkun nýjar kjarnorkuflaugar í Rússlandi, sem væru öflugri en aðrar þjóðir hefðu til umráða, eða myndu hafa til umráða á næstu árum. Hann gaf engar upplýsingar um hvers eðlis þessi nýju vopn ættu að vera, en þau eru sögð vera öðruvísi en vopn annarra kjarnorkuvelda. Sergei Ívanov, varnarmálaráðherra Rússlands, lýsti því yfir fyrr í þessum mánuði að ný, færanleg tegund Topol-M flugskeytis væri á teikniborðinu, en þau eru mjög langdræg, komast yfir tíuþúsund kílómetra leið. Að auki er talið að Rússar vinni að þróun nýrrar risakjarnorkusprengju, flugskeytis sem gæti borið tíu sprengjuodda allt að fjögur tonn á þyngd. Og Rússar hafa jafnframt sagst búa yfir kjarnorkuskeyti, sem kemst fram hjá hinum svokallaða stjörnustríðsskildi Bandaríkjamanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira