Harmleikur í Fallujah 14. nóvember 2004 00:01
Mannlegur harmleikur blasir við í borginni Fallujah í Írak. Þrátt fyrir yfirlýsingar um að bardögum þar sé lokið heldur sprenguregnið áfram og óöldin breiðist út. Þó að hjálparsamtök bíði við borgarmörk Fallujah með vistir og neyðarbirgðir kemur það íbúum borgarinnar að litlu gagni. Árásir og skærur halda þar áfram og því leyfa bandarískir hermenn ekki hjálparstarfsmönnum að fara inn í borgina. Því er óttast að fólk svelti þar heilu hungri. Heilbrigðisástandið er afar slæmt, en hermt er að lík liggi eins og hráviði úti um allt og ekki sé unnt að safna þeim saman. Talsmenn Bandaríkjahers lýstu því yfir síðdegis að engrar mannúðaraðstoðar væri þörf í borginni, því að það væru engir óbreyttir borgarar eftir. Slasaðir yrðu færðir út fyrir borgarmörk og þar mætti sinna þeim. Yfirlýsing Johns Sattlers, hershöfðingja, um ástandið í Fallujah, virðist þversagnakennd. Hann segir að borginni hafi verið náð úr höndum skæruliða, en enn sé þó barist á víð og dreif og menn mætist víða einn á einn, upp á líf og dauða. Suður af Fallujah hafa breskir hermenn það verkefni að stöðva skæruliða á flótta, og hafa fjórir ungir hermenn fallið og tólf særst við þann starfa. Skæruliðarnir virðast sleppa þrátt fyrir þetta, einkum til norðurs, þar sem þeir hafa náð nokkrum borgum á sitt vald. Einnig voru gerðar árásir á olíuleiðslur með þeim afleiðingum að um átta hundruð og fimmtíu þúsund tunnur fara til spillis.
Erlent Fréttir Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Ursula von der Leyen kemur til Íslands Innlent Fleiri fréttir Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Sjá meira