Erlent

Eldur í „Rave"-klúbbi í Hollandi

Einn fórst og sex slösuðust þegar eldur kviknaði í "Rave"-klúbbi í Amsterdam í morgun. Nokkur hundruð manns voru á staðnum þegar eldur kviknaði í yfirgefnu iðnaðarhúsnæði þar sem hústökumenn höfðu komið sér upp skemmtistað. Þykkar reykjarmökk lagði frá staðnum og þurfti fimmtán slökkvibíla með mannskap til að ráða niðurlögum eldsins. Ekki er vitað hvernig eldurinn kviknaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×