Árásir á landnemabyggðirnar 11. nóvember 2004 00:01
Andlát Arafats virðist hafa hleypt nýju blóði í herskáa Palestínumenn sem gerðu í morgun árás á landnemabyggðir gyðinga. Ríkisstjórn Ísraels hefur lokað bæði Vesturbakkanum og Gasa til að reyna að koma í veg fyrir uppþot og óeirðir. Uppreisnarmenn úr Islamic Jihad brugðust við fregnum um fráfall Arafats í morgun með því að gera sprengjuárás í suðurhluta Gasa. Þeir lýstu því yfir að árásin væri varnarárás til að stöðva Ísraelsstjórn og boðuðu hertar aðgerðir nú í framhaldi. Ljóst er að forysta Palestínumanna er í upplausn eftir andlát Arafats því enginn klár arftaki hans bíður þess að stíga fram á sjónarsviðið. Það sem menn óttast helst er einmitt að nú rofni hið sérstaka samband sem Arafat hafði við herskáa Palestínumenn. Hann hafði ekki völd yfir þeim en ákveðin áhrif sem enginn af þeim, sem talað er um sem arftaka hans, hefur. Því er mjög óttast að ofbeldið geti nú farið úr böndunum. Embættum Arafats verður fyrst um sinn skipt upp á milli nokkurra manna til að reyna að koma í veg fyrir deilur um völd og áhrif. Frelsissamtök Palestínumanna hafa samhljóða kosið Mahmoud Abbas sem leiðtoga sinn. Rawhi Fattuh, forseti þingsins, verður forseti palestínskra yfirvalda þar til kosningar verða haldnar og forsætisráðherra Palestínumanna, Ahmed Qurei, mun taka að sér önnur störf sem Arafat fór með. Þá hefur verið ákveðið að Farouk Kaddoumi taki við leiðtogahlutverkinu í Fatah-hreyfingunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Erlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Sjá meira