Barist um Ohio 3. nóvember 2004 00:01
Þegar 91 prósent atkvæða í Ohio hefur verið talið og eftir á að telja hálfa milljón atkvæða munar 102 þúsund atkvæðum á George W. Bush og John Kerry sem þarf nauðsynlega að sigra í ríkinu ef hann ætlar sér að eiga einhvern möguleika á því að verða forseti. Tvær stöðvar hafa þegar spáð Bush sigri í ríkinu en aðrir fjölmiðlar segja það of snemmt. Í prósentum talið er Bush með 51 prósent atkvæða í Ohio en Kerry með 49 prósent. Baráttan er æsispennandi í fleiri ríkjum. Bush er kominn með forystu í Iowa en því ríki tapaði hann fyrir fjórum árum þegar hann atti kappi við Al Gore. Þar munar þó aðeins sjö þúsund atkvæðum þegar búið er að telja 91 prósent atkvæða og um hundrað þúsund atkvæði ótalin. Kerry hefur mjög naumt forskot í Wisconsin þar sem hann hefur fengið 25 þúsund atkvæðum meira en Bush þegar eftir á að telja 400 þúsund atkvæði. Minnstu munar þó í Nevada þar sem Kerry er með tvö þúsund atkvæðum meira en Bush þegar 41 prósent atkvæða hafa verið talin og eftir er að telja 700 þúsund atkvæði hið minnsta. Ef ekkert breytist verður George W. Bush forseti Bandaríkjanna. Samkvæmt samantekt AP-fréttastofunnar hefur hann tryggt sér 249 kjörmenn af þeim 270 sem þarf til að vinna kosningu, að auki leiðir hann í ríkjum þar sem 32 kjörmenn eru í húfi. Falli þeir honum í hlut fær Bush 281 kjörmann og hlýtur því endurkosningu.
Erlent Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira