Reykingarbann 27. október 2004 00:01 Hulda Sigrún Haraldsdóttir sem situr í stjórn frjálshyggjufélagsins og Dagur Snær Sævarsson sem situr í ritstjórn Múrsins og í stjórn UVG ,takast á um hugsanlegt reykingabann á veitingahúsum og skemmtistöðum . Á að banna reykingar á veitingastöðum?Hulda: Það er mannréttindabrot að taka valdið af eiganda staðarins því tel ég reykingabann skaða frelsi hans. Við getum hvorki bannað né leyft reykingar á veitinga- og skemmtistað í einkaeign því það er algerlega val eigendans að setja slíkar reglur sjálfur, en þetta er mál sem kemur ríkinu hreinlega ekki við. Þetta er ekkert frábrugðið einkaheimili þar sem fólk setur reglur um slíka hluti án afskipta ríkisins. Eigendur geti ráðið því sjálfir hvað má gera á þeirra eign svo lengi sem það brýtur ekki í bága við lög en reykingar eru ekki bannaðar samkvæmt lögum. Dagur: Ég tel að það það eiga að banna þær því heilbrigðislega séð tel ég þetta koma ríkinu við þar sem almenningur sækir þessa staði. Aðalatriðið er að vernda lýðheilsu borgaranna og að mínu mati er það frelsisskerðing að fara inn á staði þar sem maður þarf að anda að sér reykmettuðu lofti og verða fyrir heilsutjóni en ég lít ekki á veitingastað og heimili sem sama hlut þó báðir staðir séu í einkaeign. Maður býður ekki almenningi að ganga í gegn heima hjá sér. Hvað með rétt starfsfólksins?Dagur: Vissulega eiga veitingahúsaeigendur staðinn en þeir eiga ekki starfsfólkið sem verður fyrir óbeinum reykingum, og er það oft í mjög erfiðri aðstöðu að berja í borðið vegna þess hvernig búið er um ráðningarsamninga og í sumum tilfellum eru þeir engir. Sökum skorts á atvinnu eru þetta oft einu störfin sem eru í boði og því valið ekki mikið og því er það fáraánlegt að reykingar þurfi að vera atriði sem fólk þarf að hugsa um þegar það velur sér starf. Það er á okkar ábyrgð að tryggja það að fólk verði ekki fyrir heilsutjóni á vinnustöðum. Hulda: Enn og aftur snýst þetta um val því fólk kýs sér starfsvettvang og þarf að vega og meta ýmsa þætti sem viðkoma starfinu, og er því ekki leynt fyrir fólki að það sé leyfilegt að reykja á staðnum. Þá getur fólk kosið hvort það vilji vinna á stað þar sem reykingar eru leyfðar. Reykingarbann á veitingastað er alfarið á ábyrgð eigendans að mínu mati alveg eins og það er alfarið á ábyrgð starfsfólksins að vinna á stað þar sem er reykt. Við eigum að bera ábyrgð á okkar öryggi sjálf og flest viljum við halda lífi og heilsu þannig að það kemur af sjálfu sér að við gætum öryggis, það er ekki hlutverk ríkisins að koma inn í öll smámál. Auk þess sem ég tel það ekki á ábyrgð eigendans ef ekki aðra vinnu er að fá. Á maður að gæta bróður síns?Hulda: Maður getur valið að gæta hans eða ekki. Við berum fyrst og fremst ábyrgð á okkur sjálf, það er ekki hlutverk annarra að bera þá ábyrgð. Dagur: Já algerlega. Ég tel að við eigum að bera ábyrgð á hvort öðru. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski skrifar Skoðun Mannauðsvald stjórnar meiru en margir halda skrifar Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Liðbólgusjúkdómar – fræðsla skiptir máli Katrín Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Í stormi reynir á leiðtogana Óskar Tryggvi Svavarsson skrifar Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar
Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Viðskiptaráð rýnir í skólakerfið á árunum 2016–2026 – var nokkuð í gangi þá? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á bak við hverja gigtargreiningu er fjölskylda sem verður fyrir áhrifum af sjúkdómnum. Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun