Kaupmáttur ellilífeyris lækkað 27. október 2004 00:01 Ellilífeyrir - Björgvin Guðmundsson Ríkisstjórnin talar mikið um það að kaupmáttur tekna hafi aukist undanfarin ár. Rétt er það, að kaupmáttur tekna margra hefur aukist nokkuð en einn hópur hefur orðið útundan: Aldraðir hafa gleymst. Kaupmáttur tekna þeirra eftir skatta hefur minnkað. Það er m.a. vegna þess að skattleysismörkin hafa ekki fylgt verðlagsþróun eða launahækkunum. Skattleysismörkin eru í dag 71.270 kr. Ef þau hefðu fylgt hækkun verðlags frá 1988 væru þau í dag 99.557 kr. en 114.956 kr. ef þau hefðu fylgt launaþróun. Þetta þýðir að launafólk verður að greiða skatt af stærri hluta tekna en áður. Skattbyrðin hefur því aukist enda þótt talsmenn ríkisstjórnarinnar haldi hinu gagnstæða fram. Örfáir talsmenn ríkisstjórnarinnar viðurkenna að skattbyrðin hafi aukist en bæta því þá við að hins vegar hafi kaupmáttur aukist mjög mikið. En hvernig er ástandið í þessum efnum hjá öldruðum? Lítum á dæmigerðan ellilífeyrisþega á árinu 2004, sem hefur nokkurn lífeyri úr lífeyrissjóði: Óskertur grunnlífeyrir og tekjutrygging með eingreiðslum nemur samtals 64.640 kr. á mánuði. 45.860 kr. koma úr lífeyrissjóði. Samtals gera þetta 110.500 kr. á mánuði. Samsvarandi tekjur árið 1988 voru 46.114 kr. á mánuði, miðað við greiðslur almannatrygginga 1988 og sömu rauntekjur frá lífeyrissjóði það ár. Kaupmáttur tekna þessa ellilífeyrisþega hefur aukist um 6,3% fyrir tekjuskatt frá 1988. En eftir tekjuskatta (kaupmáttur ráðstöfunartekna) hefur kaupmáttur tekna hans minnkað um 6,85% eða um 7.013 kr. á mánuði. Ef athugað er hvernig kaupmátturinn hefur breyst frá árinu 1990 kemur í ljós að hann hefur aukist um 2,4%, eða um 2.261 kr. á mánuði eftir skatta! Það er öll aukning kaupmáttar aldraðra á því tímabili sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með stjórnarforustu. Kaupmáttur lágmarkslauna á almennum vinnumarkaði hefur aukist um 56,1% fyrir tekjuskatt frá árinu 1990. Kaupmáttur greiðslna almannatrygginga hefur hins vegar aðeins aukist um 24,7% á sama tímabili, fyrir tekjuskatt. Lífeyrisþegar Tryggingastofnunar ríkisins hafa því ekki fengið sömu hækkun á lífeyri sínum og verkafólk á almennum vinnumarkaði. Á þessu tímabili hefðu elli- og örorkulífeyrisþegar átt að fá meiri hækkun en aðrir í þjóðfélaginu en þeir hafa setið eftir og fengið minna en aðrir. Ef þeir hefðu fengið hið sama og aðrir væru bætur þeirra nú 16.248 kr. hærri á mánuði en þær eru. Það þarf að leiðrétta þessar bætur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Sjá meira
Ellilífeyrir - Björgvin Guðmundsson Ríkisstjórnin talar mikið um það að kaupmáttur tekna hafi aukist undanfarin ár. Rétt er það, að kaupmáttur tekna margra hefur aukist nokkuð en einn hópur hefur orðið útundan: Aldraðir hafa gleymst. Kaupmáttur tekna þeirra eftir skatta hefur minnkað. Það er m.a. vegna þess að skattleysismörkin hafa ekki fylgt verðlagsþróun eða launahækkunum. Skattleysismörkin eru í dag 71.270 kr. Ef þau hefðu fylgt hækkun verðlags frá 1988 væru þau í dag 99.557 kr. en 114.956 kr. ef þau hefðu fylgt launaþróun. Þetta þýðir að launafólk verður að greiða skatt af stærri hluta tekna en áður. Skattbyrðin hefur því aukist enda þótt talsmenn ríkisstjórnarinnar haldi hinu gagnstæða fram. Örfáir talsmenn ríkisstjórnarinnar viðurkenna að skattbyrðin hafi aukist en bæta því þá við að hins vegar hafi kaupmáttur aukist mjög mikið. En hvernig er ástandið í þessum efnum hjá öldruðum? Lítum á dæmigerðan ellilífeyrisþega á árinu 2004, sem hefur nokkurn lífeyri úr lífeyrissjóði: Óskertur grunnlífeyrir og tekjutrygging með eingreiðslum nemur samtals 64.640 kr. á mánuði. 45.860 kr. koma úr lífeyrissjóði. Samtals gera þetta 110.500 kr. á mánuði. Samsvarandi tekjur árið 1988 voru 46.114 kr. á mánuði, miðað við greiðslur almannatrygginga 1988 og sömu rauntekjur frá lífeyrissjóði það ár. Kaupmáttur tekna þessa ellilífeyrisþega hefur aukist um 6,3% fyrir tekjuskatt frá 1988. En eftir tekjuskatta (kaupmáttur ráðstöfunartekna) hefur kaupmáttur tekna hans minnkað um 6,85% eða um 7.013 kr. á mánuði. Ef athugað er hvernig kaupmátturinn hefur breyst frá árinu 1990 kemur í ljós að hann hefur aukist um 2,4%, eða um 2.261 kr. á mánuði eftir skatta! Það er öll aukning kaupmáttar aldraðra á því tímabili sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið með stjórnarforustu. Kaupmáttur lágmarkslauna á almennum vinnumarkaði hefur aukist um 56,1% fyrir tekjuskatt frá árinu 1990. Kaupmáttur greiðslna almannatrygginga hefur hins vegar aðeins aukist um 24,7% á sama tímabili, fyrir tekjuskatt. Lífeyrisþegar Tryggingastofnunar ríkisins hafa því ekki fengið sömu hækkun á lífeyri sínum og verkafólk á almennum vinnumarkaði. Á þessu tímabili hefðu elli- og örorkulífeyrisþegar átt að fá meiri hækkun en aðrir í þjóðfélaginu en þeir hafa setið eftir og fengið minna en aðrir. Ef þeir hefðu fengið hið sama og aðrir væru bætur þeirra nú 16.248 kr. hærri á mánuði en þær eru. Það þarf að leiðrétta þessar bætur.
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir Skoðun