Setur Nader strik í reikninginn 15. október 2004 00:01
Neytendafrömuðurinn og sjálfstæði forsetaframbjóðandinn Ralph Nader gæti eyðilagt vonir Johns Kerry um að komast í Hvíta húsið. Ef kosningaúrslit verða í átt við niðurstöður skoðanakannana má búast við spennandi kosninganótt og þá skiptir allt máli. 2. nóvember, eftir minna en þrjár vikur, ganga bandarískir kjósendur að kjörborðinu og velja sér forseta. Verstu martraðir demókrata eru að verða að veruleika, Ralph Nader er búinn að tryggja nafnið sitt á kjörseðla meira en þrjátíu ríkja. Skoðanakannananir sýna að það er afar mjótt á mununum og því eru sérfræðingar farnir að rýna í öll smáatriði. Í níu ríkjum er útlit fyrir að Nader dragi fylgi frá Kerry, í Colorado, Flórída, Iowa, Maine, Minnesota, Nevada, New Hampshire, New Mexico og Wisconsin. Þetta getur skipt verulegu máli því eins og flestir þekkja þá snúast bandarísku forsetakosningarnar í raun um sigur í hverju ríki fyrir sig. Sigur í ríki tryggir frambjóðenda alla kjörmenn en þeir eru mismargir eftir fjölda kjósenda. 270 kjörmenn tryggja sigur og valdamesta embætti heims. Í Colorado munu menn hins vegar samhliða forsetakosningunum kjósa um breytingartillögu á kosningakerfinu sem ef samþykkt myndi taka gildi strax. Tillagan gengur út á að frambjóðendur fái sama hlutfall kjörmanna og atkvæði. Það gæti breytt miklu en til að mynda hefði Al Gore verið forseti síðustu fjögur árin hefðu Coloradobúar samþykkt þessar breytingar árið 2000.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira