Saddam, Brúskur og Írak 12. október 2004 00:01 Saddam, Brúskur og Írak - Jens Guð Írakar hata Saddam Hussein. Hann pyntaði þá og drap með köldu blóði (ekki heitu eins og algengast er). Ef Saddam var ósammála einhverjum ráðherra sinna lét hann sér ekki nægja að slá kauða eldsnöggt í höfuðið með reglustriku. Nei, Saddam skaut ráðherrann eldsnöggt í höfuðið með byssu. Snéri sér svo að hinum ráðherrunum og spurði hvort fleiri væru á sömu skoðun. Jafnan voru þá allir ósammála þeim nýskotna. Sjaldan þurfti Saddam því að skjóta fleiri en 1 ráðherra á fundi. Aldrei var þó skortur á ráðherraefnum, fremur en hjá Framsóknarflokknum. Lengst af var Bandaríkjamönnum og öðrum vesturlandabúum hlýtt til Saddams. Hann þótti staðfastur og viljugur. Til viðbótar gerðu þeir oft góðan bissniss saman, vinirnir. M.a. var Saddam séð fyrir nægum efnavopnum til að hafa hemil á fólksfjölgun Kúrda. Sömuleiðis var Saddam séð fyrir fjölbreyttum vopnum til að halda úti áratugarlöngu stríði við Írani. Að vísu laumaði bandaríkjaforseti - án vitundar og vilja þings - hliðstæðum vopnabúnaði til Írana. Þannig gátu Saddam og klerkastjórnin í Íran alltaf drepið álíka marga úr hvoru liði í áratug. Og allir voru ánægðir með sinn bissniss. Einkum Contra-liðar í Nicaragua sem fengu gróðann af vopnasölunni til Írans í bónus fyrir að þiggja þjálfun í hryðjuverkum af hálfu Brúsks eldri og félaga hans hjá CIA. Vegna haturs Íraka á Saddam þorði kallinn ekki að láta sjá sig opinberlega. Þess í stað var 5 Írökum breytt með lýtaaðgerðum í tvífara hans. Þeir voru pyntaðir til að koma fram við opinber tækifæri sem Saddam. Samhliða framleiðslu á tvíförum hóf Saddam umfangsmikla framleiðslu á gereyðingavopnum. Heimsbyggðinni stafaði ógn af. Að baki gereyðingarvopnabúri Saddams lá illur ásetningur. Öfugt við aðra sem framleiða gereyðingavopn í friðsamlegum tilgangi. Það getur alltaf verið gott að eiga gereyðingarvopn til friðsamlegra nota. En Saddam huggðist eyða allri heimsbyggðinni á 45 mínútum. Nema Írak og Afganistan. Eins og Brúskur W. hefur bent á þá tók Saddam við af Bandaríkjunum að stýra hryðjuverkum Osama bin Ladens, sem hefur gert út frá Afganistan síðan Bandaríkin studdu talibana til valda þar. Og ekki lýgur Brúskur fremur en Blair. Ja, að vísu ljúga þeir félagar stundum. En ekki viljandi. Bestu leyniþjónustur heims (að mati Halldórs Ásgrímssonar) gefa þeim bara i ógáti rangar upplýsingar. Eins og gerist og gengur. Vegna þessa var nauðsynlegt að hernema Írak, koma böndum á gereyðingarvopnabúrið og refsa Saddam fyrir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. sept. Í ringulreið innrásarinnar í Írak týndust gereyðingarvopnin. Saddam fann þau ekki þegar hann ætlaði að beita þeim gegn innrásarher Bandaríkjanna og Íslands. Síðar fagnaði Halldór Ásgrímsson um heimssögulegan viðburð þegar íslenskir gereyðingavopnafræðingar duttu um hin hræðilegu vopn. Heimssögulegi viðburðurinn fór framhjá heimspressunni. Þrátt fyrir að 9 af hverjum 10 kjósendum hafi ekki krossað við Halldór í síðustu kosningum þá verður ekki frá honum tekið að hann - einn allra þjóðarleiðtoga heims - býr yfir leyndarmáli um heimssögulegan viðburð. Burt séð frá því. Hvað varð um tvífarana hans Saddams? Hvernig væri að íslenska hernámsliðið reyndi að finna þá? Það yrði heimssögulegur viðburður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 1-10, litir eða bókstafir – um hvað snýst málið? Ragnheiður Stephensen Skoðun Fórnarkostnaður evrunnar: 540 milljarða króna verðmiði á altari stöðugleikans (stöðnunar) Eggert Sigurbergsson Skoðun Eðli umburðarlyndis hægrimanna Sigurður Örn Stefánsson Skoðun Að bæla niður öfgar með öfgum Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Borgarlínan og umferðin í Grafarvogi Þórir Garðarsson Skoðun Nýju fötin keisarans – Einfaldað í þykjustunni Árni Davíðsson Skoðun Þjónustuskerðing Sorpu Baldur Guðmundsson Skoðun Brothætta karlmennskan sem óttast regnbogafána Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Sterkur og skapandi Garðabær Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir Skoðun Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Brothætta karlmennskan sem óttast regnbogafána Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Fórnarkostnaður evrunnar: 540 milljarða króna verðmiði á altari stöðugleikans (stöðnunar) Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Takk leikskólakennarar og starfsfólk Súsan Ósk Scheving Thorsteinsson skrifar Skoðun Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja – mikilvægur þáttur í rekstrinum Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Sterkari velferð – betri Hafnarfjörður Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Hlutverk háskóla í gervigreindarbyltingunni Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun Flug með fortíð og framtíð Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir,Helgi Karl Guðmundsson,Finney Rakel Árnadóttir,Sigurður Jón Hreinsson,Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir,Úlfar Logason,Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar Skoðun Eineltissamfélagið Ísland – umfjöllun Berlingske Tidende um Ísland Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Þétting byggðar og grænu svæðin í Kópavogi Beitir Ólafsson skrifar Skoðun Nýju fötin keisarans – Einfaldað í þykjustunni Árni Davíðsson skrifar Skoðun Þjónustuskerðing Sorpu Baldur Guðmundsson skrifar Skoðun Hvert er erindið? Orri Björnsson skrifar Skoðun Góð byrjun er pólitískt val Guðrún Rakel Svandísardóttir skrifar Skoðun Er það vinna að vera heima með börnum sínum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjölskylduvænt samfélag í verki Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Eðli umburðarlyndis hægrimanna Sigurður Örn Stefánsson skrifar Skoðun Hið fullkomna (Evrópu)samband Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Fjölmenningin í Hafnarfirði! Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Þjónustumiðstöð 60+ í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Anna Jórunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Að bæla niður öfgar með öfgum Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun 1-10, litir eða bókstafir – um hvað snýst málið? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Samfélag sem stendur með fólki Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Sterkur og skapandi Garðabær Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir skrifar Skoðun Frá sigri mannsandans yfir í neyðarástand María Pálsdóttir skrifar Skoðun Svartir blettir á upplýsingarétti almennings Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Borgarlínan og umferðin í Grafarvogi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fossvogslaug – góð hugmynd, engin framkvæmd Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Þetta segir fundargerð ESB frá 18. desember 2012 um aðlögun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Skilvirkni og gagnsæi í málefnum flóttafólks Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Nei eða já, af eða á Ásgeir Þorgeirsson skrifar Sjá meira
Fórnarkostnaður evrunnar: 540 milljarða króna verðmiði á altari stöðugleikans (stöðnunar) Eggert Sigurbergsson Skoðun
Skoðun Fórnarkostnaður evrunnar: 540 milljarða króna verðmiði á altari stöðugleikans (stöðnunar) Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja – mikilvægur þáttur í rekstrinum Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Flug með fortíð og framtíð Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir,Helgi Karl Guðmundsson,Finney Rakel Árnadóttir,Sigurður Jón Hreinsson,Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir,Úlfar Logason,Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar
Skoðun Eineltissamfélagið Ísland – umfjöllun Berlingske Tidende um Ísland Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Þjónustumiðstöð 60+ í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Anna Jórunn Stefánsdóttir skrifar
Fórnarkostnaður evrunnar: 540 milljarða króna verðmiði á altari stöðugleikans (stöðnunar) Eggert Sigurbergsson Skoðun